Innlent

Vaktin: Áfram rífandi stemming niðri í bæ

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, lét sig ekki vanta á baráttufundinn á Arnarhóli sem var haldinn í tilefni kvennaverkfallsins í dag.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, lét sig ekki vanta á baráttufundinn á Arnarhóli sem var haldinn í tilefni kvennaverkfallsins í dag. Vísir/Vilhelm

Kvennaverkfallið hófst formlega á miðnætti en fyrstu merki þess mátti sjá í umferðinni í morgun sem var afar lítil. Þá eru margir vinnustaðir ansi tómlegir eða hreinlega lokaðir vegna verkfallsins.

Kvennafrídagurinn var fyrst haldinn á Íslandi þann 24. október 1975, til að mótmæla margvíslegri mismunun gegn konum á vinnumarkaðnum og vekja athygli á framlagi kvenna til samfélagsins. Viðburðurinn vakti heimsathygli. Kvennafrídagurinn hefur verið endurtekinn fimm sinnum: 1985, 2005, 2010, 2016 og 2018.

Skipulögð dagskrá fer fram um land allt í dag. Búast má við því að verkfallið hafi veruleg áhrif á samfélagið allt. Allt um verkfallið hér. Vísir verður í beinni útsendingu frá Arnarhóli þar sem dagskrá hefst klukkan 14.

Á Arnarhóli tróðu upp Sóðaskapur (pönk hljómsveit skipuð þremur ungum konum), Ragga Gísla og Una Torfadóttir.

Urður Bartels, stálp úr MH, Guðbjörg Pálsdóttir, formaður félags hjúkrunarfræðinga, og Alice Olivia Clarke, sem rekur fyrirtækið Tíra reflective accessories,fluttu ræður. Einnig fluttu tólf konur og kvár hópatriðið Jafnréttisparadísin Ísland.

Baráttufundurinn er búinn en samkvæmt heimildarmönnum Vísis er enn rífandi stemming niðri í bæ.

Fylgst er með gangi mála í vaktinni að neðan. Við tökum við ábendingum á netfangið ritstjorn@visir.is. Ef vaktin sést ekki er ráð að ýta á refresh-takkann.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×