Dómsmálaráðherra Belgíu segir af sér vegna skotárásarinnar Viktor Örn Ásgeirsson skrifar 21. október 2023 15:49 Vincent van Quickenborne dómsmálaráðherra Belgíu segist hafa gert mistök. EPA-EFE/REMKO DE WAAL Dómsmálaráðherra Belgíu hefur ákveðið að segja af sér vegna skotárásar þar sem tveir Svíar voru skotnir til bana í Brussel í vikunni. Hann segist hafa gert mistök en árásarmaðurinn dvaldi ólöglega í Belgíu. „
Þetta eru risastór og óviðunandi mistök með hræðilegum afleiðingum og þau skrifast á mig. Dómari fylgdi gerðinni ekki eftir og málið var ekki afgreitt sem skyldi. Ég er ekki að reyna að afsaka mig með neinum hætti en ég held að mér beri skylda til að segja af mér,“ sagði Vincent Van Quickenborne dómsmálaráðherra þegar hann tilkynnti afsögn sína í gær. Árásarmaðurinn var 45 ára gamall Túnisbúi sem dvaldi ólöglega í Belgíu. Hann mun hafa verið þekktur hjá lögreglu grunaður um ýmsa glæpi og mansal. Yfirvöld í Túnis höfðu gefið út handtökuskipun og óskuðu eftir framsali mannsins í fyrra. Belgísk yfirvöld sinntu ekki boðunum og segist dómsmálaráðherra bera á því ábyrgð. Deutsche Welle greinir frá. Eins og fyrr segir létu tveir Svíar, fótboltaaðdáendur, lífið í árásinni og einn særðist til viðbótar. Hinir látnu voru eldri karlmenn, annar á sjötugsaldri og hinn á áttræðisaldri. Annar þeirra var búsettur í Stokkhólmi en hinn bjó erlendis. Árásarmaðurinn hafði áður búið í Svíþjóð og meðal annars setið þar í fangelsi. Hann hafði meðal annars sótt um hæli í Noregi, Svíþjóð, Ítalíu og Belgíu en Belgar höfnuðu honum árið 2021 og átti hann því að hafa farið úr landi.
Belgía Mest lesið Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Innlent Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Erlent Festust á hvolfi í hálftíma Erlent Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Innlent Guðni snýr aftur í sagnfræðina Innlent Of snemmt að kenna bikblæðingum um Innlent Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Innlent Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Innlent Fleiri fréttir Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Festust á hvolfi í hálftíma Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Vara við TikTok-æði eftir handtöku tveggja unglinga Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni Öryggisráðið styður friðartillögu Biden Flugvél varaforseta Malaví týnd Biden ber ekki vitni í eigin sakamáli Ekkja leiðtoga ISIS leysir frá skjóðunni Sjá meira