Innlent

Mat­vælin í geymslu þrif­fyrir­tækis ná­tengdu veitinga­húsa­rekstri

Helena Rós Sturludóttir og Kolbeinn Tumi Daðason skrifa
Þegar hringt var í Vy-þrif í dag framsendist síminn á karlmann sem kannaðist ekkert við að starfa hjá fyrirtækinu. Hann vísaði á forstjóra fyrirtækisins sem náðist ekki í.
Þegar hringt var í Vy-þrif í dag framsendist síminn á karlmann sem kannaðist ekkert við að starfa hjá fyrirtækinu. Hann vísaði á forstjóra fyrirtækisins sem náðist ekki í. Vy-þrif

Þriffyrirtæki í Reykjavík sem er í eigu stórtæks veitingamanns leigði geymslurými í höfuðborginni þar sem heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur lagði hald á og lét farga fleiri tonnum af matvælum í síðustu viku. Óljóst er hvort til hafi staðið að selja matvælin til veitingastaða eða annarra aðila.

Farið var yfir málin í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Það var í síðustu viku sem matvælaeftirlit heilbrigðiseftirlits Reykjavíkurborgar lagðist í umfangsmikla aðgerð í Sóltúni í Reykjavík. Morgunblaðið greindi frá því að aðgerðin hefði verið umfangsmikil og tíu heilbrigðisfulltrúar komið að henni.

Óskar Ísfeld Sigurðsson, deildarstjóri eftirlitsins, segir að um hafi verið að ræða ólöglegan matvælalager. Óheilnæmar aðstæður hafi verið í húsnæðinu en um er að ræða geymslurými í kjallara um 360 fermetra að stærð.

Fram hefur komið að nágannar hafi fundið fyrir vondri lykt á svæðinu. Þá hefur fréttastofa heimildir fyrir því að rottugangur hafi verið á svæðinu.

Þriðji aðili með rýmið í leigu

Fasteignafélagið Sigtún ehf er eigandi rýmisins en leigði það út til annars félags. Samkvæmt heimildum fréttastofu vildi félagið losna úr rýminu en var fast með leigusamning. Úr varð að félagið framleigði rýmið til þriffyrirtækisins Vy-þrif.

Rampurinn inn í geymslurýmið í Sóltúni 20.Vísir/Vilhelm

Fréttastofa gerði endurteknar tilraunir til að ná tali af forsvarsfólki Vy-þrifa í dag. Þegar hringt var í símanúmerið hjá Vy-þrifum var síminn áframsendur á karlmann sem kannaðist ekki við að vera starfsmaður Vy-þrifa. Hann sagðist ekkert tengjast umræddu máli, væri í raun viðskiptavinur fyrirtækisins en kannaðist við eigandann. Sá væri staddur erlendis.

Fréttastofa reyndi að ná í Davíð Viðarsson, skráðan eiganda Vy-þrifa, í dag. Davíð svaraði hvorki símtölum né skilaboðum. Auk Vy-þrifa er Davíð skráður eigandi veitingahússkeðjunnar Pho-Víetnam sem heldur úti nokkrum útibúum á höfuðborgarsvæðinu. Í viðtölum undanfarin ár hefur þó Quang Le komið fram sem eigandi.

Þá keypti félagið NQ fasteignir ehf. í eigu Davíðs Herkastalann við Kirkjustræti 2 í Reykjavík, sem áður hýsti Hjálpræðisherinn, á hálfan milljarð króna í fyrra. 

Í tilkynningu var félaginu lýst sem íslensku-víetnömsku fjölskyldufyrirtæki sem ætlaði að reka hótel og veitingastað í húsinu.

Fjölbreyttar tegundir matvæla

Óskar Ísfeld gaf ekki kost á viðtali vegna málsins í dag.  Tómas G. Gíslason framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur óskaði eftir skriflegum spurningum en þeim hafði ekki verið svarað þegar fréttin var skrifuð. 

Óskar Ísfeld sagði í viðtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í gær að upplýsingar lægju ekki fyrir um hvort matvælin hefðu verið seld og væru í dreifingu. Það væri enn í rannsókn.

Töluvert er af hrísgrjónum og ýmislegt drasl fyrir utan geymsluna. Þar voru fuglar í morgunsárið að finna sér eitthvað ætilegt.Vísir/Vilhelm

Um fjölbreyttar tegundir matvæla var að ræða, ýmsar gerðir af frystivörum, þurrvörur og sósur. Óskar sagði málið fordæmalaust og að þeirra mat væri að matvælin væru hættuleg. Aðspurður um hvort stæði til að upplýsa um það um hvaða fyrirtæki væri að ræða sagði hann að allt eftirlit Matvælastofnunar væri opinbert.

„Þegar við erum búin að taka saman okkar vinnu og gefa viðkomandi aðila tækifæri til að tjá sig um það, gera athugasemdir og svo framvegis, þá verða slíkar eftirlitsskýrslur opinberar.“

Þá hefur Óskar sagt óljóst hvað átti að verða um matvælin sem lokið var við að farga á mánudaginn.


Tengdar fréttir

Eigandinn í Sóltúni segir málið sér óviðkomandi

Eigandi húsnæðisins þar sem lagt var hald á mikið magn matvæla við óheilnæmar aðstæður í síðustu viku, segir málið sér alls óviðkomandi. Hann hafi leigt húsnæðið og sá sem leigði af honum áframleigði það.

Ná­grannar kvörtuðu undan lykt sem barst frá geymslunni

Matvælageymslan þar sem mörg tonn af matvælum sem geymd voru við óheilnæmar aðstæður fundust í síðustu viku var til húsa í Sóltúni 20. Aðrir sem höfðu afnot af umræddu húsnæði kvörtuðu undan lykt sem barst frá geymslunni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×