Banaslys á Suðurlandsvegi 2021: Nýkominn með bílpróf þegar hann tók fram úr Atli Ísleifsson skrifar 20. september 2023 11:40 Yfirlitsmynd af slysstað sem sýnir akstursáttir bílanna og staðsetningu þeirra eftir slysið. Við björgun ökumanns Toyota-bílsins var bílnum velt af hægri hlið yfir á hjólin. RNSA Banaslys sem varð á Suðurlandsvegi rétt austan við Þingborg í Árnessýslu, þegar tveir bílar rákust saman í desember 2021, er rakið til þess að ökumaður annars bílsins hafi ekki sýnt næga aðgæslu í framúrakstri. Áreksturinn var harður og lést 89 ára karlmaður, sem var í bíl sem kom úr gagnstæðri átt, tveimur vikum eftir slysið.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa birti í dag skýrslu sína um slysið sem varð síðdegis 20. desember 2021. Um slysið segir að Toyota Land Cruiser bíl hafi verið á leið austur Suðurlandsveg, um níu kílómetra austan við Selfoss. Á sama tíma hafi Volvo XC 60 fólksbíl verið ekið úr gagnstæðri átt vestur Suðurlandsveg þar sem hann var í framúrakstri á vinstri akrein og að lokum lent framan á Land Cruiser-jeppanum í hörðum árekstri. Þá segir að ökumaður jeppans hafi látist tveimur vikum síðar á sjúkrahúsi af völdum áverka sem hann hlaut í slysinu. Einn farþegi var í Toyota-bílnum og slasaðist hann alvarlega, en ökumaður Volvo-bílsins var einn í bílnum og slasaðist lítillega. „Í orsakagreiningu skýrslunnar kemur fram að Volvo bifreiðinni var ekið töluvert yfir hámarkshraða fram úr röð bifreiða. Ökumaður hennar gekk ekki úr skugga um að það væri hægt án hættu gagnvart annarri umferð. Hálka var á veginum og hafði sennilega áhrif á beygju- og hemlunargetu Volvo bifreiðarinnar,“ segir um orsakir slyssins. Fór fram úr þremur í einu Fram kemur í skýrslunni að aðstæður hafi verið á þann veg að það hafi verið eins stigs frost, myrkur, hrímþoka og hálka. Rannsókn hafi leitt í ljós að þremur sekúndum fyrir slysið hafi hraði Volvo-bílsins verið orðinn 127 kílómetra hraði, en við árekstur 114 kílómetrar á klukkustund. „Að sögn vitna var Volvo bifreiðinni ekið fram úr þremur ökutækjum í einu áður en áreksturinn varð. Fyrst var henni ekið fram úr vöruflutningabifreið með tengivagn, þá fólksbifreið og að lokum pallbifreið með kerru. Að sögn sömu vitna náði ökumaður Volvo bifreiðarinnar ekki að beygja aftur inn á hægri vegarhelminginn eftir þriðja framúraksturinn og ók framan á Toyota bifreiðina sem ekið var úr gagnstæðri átt. Vinstri framhorn bifreiðanna skullu saman í hörðum árekstri,“ segir í skýrslunni. Reynslulítill og óvanur akstri í þjóðvegum Þá segir ennfremur að ökumaður Volvo-bílsins hafi verið reynslulítill, nýlega öðlast ökuréttindi og hafði því haft litla reynslu af akstri á þjóðvegum. Rannsóknarnefndin áréttar í skýrslunni hversu brýnt sé að ökumenn sýni fyllstu aðgæslu við framúrakstur. „Of hraður akstur er ein af algengustu orsökum banaslysa í umferðinni og ítrekar nefndin mikilvægi þess að ökumenn virði lögboðinn hámarkshraða og aðstæður hverju sinni. Að vetrarlagi geta aðstæður á vegum landsins breyst hratt og hálka myndast þegar hitastig fellur. Ökumenn þurfa að vera vakandi fyrir breytingum á ástandi vega,“ segir í skýrslunni.
Samgönguslys Flóahreppur Tengdar fréttir Alvarlega slasaður eftir misheppnaðan framúrakstur Ökumaður jeppa, sem lenti í árekstri á Suðurlandsvegi 20. desember síðastliðinn, slasaðist alvarlega í árekstrinum. Jepplingur, sem reynt hafði framúrakstur, lenti framan á bílnum með þessum alvarlegu afleiðingum. 27. desember 2021 11:43 Suðurlandsvegur lokaður eftir harðan árekstur Harður tveggja bíla árekstur átti sér stað á Suðurlandsvegi um klukkan 18 í kvöld og er vegurinn nú lokaður rétt austan við Þingborg. Þrír einstaklingar voru fluttir á Landspítala og er talið að líklegt að einhverjir séu alvarlega slasaðir. 20. desember 2021 19:03 Ræða við vitni og aðila að slysinu á Suðurlandsvegi Lögreglan á Suðurlandi hefur nú til rannsóknar slys sem varð á Suðurlandsvegi rétt austan við Þingborg í gærkvöldi. Þrír voru fluttir á Landspítala. 21. desember 2021 13:38 Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Sjá meira
Alvarlega slasaður eftir misheppnaðan framúrakstur Ökumaður jeppa, sem lenti í árekstri á Suðurlandsvegi 20. desember síðastliðinn, slasaðist alvarlega í árekstrinum. Jepplingur, sem reynt hafði framúrakstur, lenti framan á bílnum með þessum alvarlegu afleiðingum. 27. desember 2021 11:43
Suðurlandsvegur lokaður eftir harðan árekstur Harður tveggja bíla árekstur átti sér stað á Suðurlandsvegi um klukkan 18 í kvöld og er vegurinn nú lokaður rétt austan við Þingborg. Þrír einstaklingar voru fluttir á Landspítala og er talið að líklegt að einhverjir séu alvarlega slasaðir. 20. desember 2021 19:03
Ræða við vitni og aðila að slysinu á Suðurlandsvegi Lögreglan á Suðurlandi hefur nú til rannsóknar slys sem varð á Suðurlandsvegi rétt austan við Þingborg í gærkvöldi. Þrír voru fluttir á Landspítala. 21. desember 2021 13:38