Spennandi ævintýri með Aventura Aventura 24. ágúst 2023 11:30 Prag er mjög vinsæl borg en Aventura býður upp á beint flug þangað frá Keflavík og Akureyri. Ferðaskrifstofan Aventura hefur nú verið rekin í fimm ár, en byggir á áratuga reynslu eiganda og starfsfólks og býður Íslendingum upp á marga spennandi og skemmtilega ferðamöguleika til útlanda.
Sérþekking starfsfólks ferðaskrifstofunnar á öllum helstu borgum Evrópu hefur fengið mjög góðar viðtökur og hefur aukningin á námsferðum og árshátíðarferðum verið yfir 300% á árinu segir Andri Már Ingólfsson, forstjóri Aventura. Andri Már Ingólfsson er forstjóri Aventura. „Það hefur verið einstaklega skemmtilegt að skipuleggja þessi verkefni, svo sem skólaheimsóknir við Garda vatnið og í Lugano í Sviss, þar sem skóli á okkar vegum heimsótti sumar af bestu menntastofnunum í Sviss og Ítalíu. Einnig má nefna frábærlega vel heppnaðar ferðir til Lissabon þar sem hópar á okkar vegum kynntust menntakerfinu og menntastefnunni þar í borg.“ Næsta vor verður boðið upp á skólaheimsóknir til Prag, Lissabon og Búdapest en þar má finna spennandi skóla og námskeið. Hann segir ótrúlega marga möguleikar vera í boði. „Nú er til dæmis mikil ásókn í ferðir næsta vor til Prag, Lissabon og Búdapest því þar eru spennandi skólar og námskeið í boði auk þess sem við bjóðum upp á beint flug. Ekki má svo gleyma Tenerife sem er einn vinsælasti kosturinn en þar er einnig boðið upp á mjög spennandi námskeið og skólaheimsóknir.“ Viðskiptavinir Aventura hafa fengið að heimsækja marga eftirsóttustu skóla í Evrópu. Eftirminnilegar árshátíðarferðir Árshátíðarferðir Aventura hafa notið mikilla vinsælda en vinsælustu áfangastaðir fyrir árshátíðir í ár og á síðasta ári hafa verið Prag, Lissabon, Kaupmannahöfn, Gdansk og Porto. Lissabon býður upp á fjölda glæsilegra sala undir árshátíðir. „Fjöldi fyrirtækja og stofnana hafa treyst Aventura fyrir skipulagningu ferðarinnar sem við erum afar stolt af,“ segir Andri. „Allar þessar borgir sameina það besta fyrir árshátíðir, eins og til dæmis góð hótel, góða flugáætlun, frábæra veitingastaði og einstaka staði til að halda árshátíðir. Við höfum boðið upp á ýmsa ólíka möguleika þegar kemur að staðsetningu árshátíða í þessum ferðum, meðal annars ráðhúsið í Edinborg, kastala í Prag og herragarð í Varsjá. Það er gaman að finna einstaka staði sem þessa sem búa til frábæra upplifun þegar fyrirtæki eru að fagna sérstökum tímamótum með starfsfólki sínu.“ Vinsælustu áfangastaðirnir Einstakt tölvukerfi Aventura býður viðskiptavinum alltaf upp á að finna bestu verð til vinsælustu áfangastaða ferðaskrifstofunnar segir Andri. „Það finnur lægstu verð hjá Play, Icelandair, Vueling eða SAS, allt eftir því hvert þú vilt fljúga. Auk þess erum við með samninga við öll vinsælustu hótelin á hverjum áfangastað, oft á mun lægra verði en samkeppnisaðilarnir. Þetta hefur gefið okkur gríðarlega góð viðbrögð hjá viðskiptavinum okkar enda var vöxturinn á síðasta ári 270%.“ Þúsundir Íslendinga ferðast með Aventura til Kanaríeyja á hverju ári. Tenerife trónir á toppnum að sögn Andra og segir hann þúsundir Íslendinga hafa ferðast með Aventura til Tenerife á árinu. „Og ekkert lát er á vinsældum Tenerife. Það sem fólki líkar vel er að það getur ráðið ferðalengdinni. Nú fara margir í viku til tíu daga og fara kannski 2-3 sinnum á ári. Mikil aukning hefur verið í sölu á betri hótelum, eins og Troya og Costa Adeje en svo eru íbúðarhótel við ströndina alltaf vinsæl, svo sem HG Tenerife Sur, sem margir elska. Einnig má nefna að Costa del Sol á Spáni var með mikla aukningu í sumar enda er boðið upp á ný og glæsileg hótel þar.“ Aventura býður upp á frábær hótel á Tenerife. Nýir valkostir í spennandi golfferðum Golfferðir í sólina hafa notið mikilla vinsælda meðal landsmanna í langan tíma og býður Aventura upp á nokkra mjög spennandi valkosti. „Einn vinsælasti staðurinn sem við kynntum nú í ár er La Cala á Spáni. Sá staður hefur svo sannarlega slegið í gegn en hann býður upp á þrjá glæsilega golfvelli á einum stað og frábær hótel í nágrenninu. Um þessar mundir erum við að kynna ferðir þangað næsta vor en eftirspurnin er svo mikil að það þarf að bóka hann snemma.“ La Cala á Spáni hefur slegið í gegn en hann býður upp á þrjá glæsilega golfvelli á einum stað og frábær hótel í nágrenninu. Aðrir frábærir valkostir að hans sögn eru La Quinta í Marbella, sem er glæsilegur 5 stjörnu völlur, og Playa Granada, náttúruparadís við ströndina, í aðeins hálftíma akstursfjarlægð frá Malaga. „Aventura er með sérsamninga við alla þessa velli og fjöldi farþega frá okkur er á leið þangað núna í haust.“ Landsliðið á Kanarí Í vetur verður Aventura með einvalalið fararstjóra á Kanaríeyjum og heldur þar með áfram með það starf sem Andri Már hóf fyrir 25 árum síðan þegar hann hóf beint flug þangað. „Hér er frábær aðbúnaður og einstakir farstjórar sem búa til upplifun og skemmtun á hverjum degi og búa til stemmningu yfir vetrarmánuðina á Kanarí sem er einstök. Einvalalið fararstjóra er á Kanaríeyjum á vegum Aventura og halda þeir uppi góðri stemningu og fjölbreyttri dagskrá. Hundruð Íslendinga njóta þess að eyða 3-6 vikum í sólinni, njóta líkamsræktar og útiveru og að stytta vetrarmánuðina með því að dvelja í besta veðurfari sem hægt er að hugsa sér yfir veturinn. Aventura er með sérsamninga við öll vinsælustu hótelin á Kanarí, svo sem Barbacan Sol, Eugenia Victoria, Jardin Atlantico, og núna Rey Carlos, frábæran nýjan valkost á Kanarí.“ Aventura er með sérsamninga við öll vinsælustu hótelin á Kanarí, svo sem Barbacan Sol, Eugenia Victoria, Jardin Atlantico, og núna Rey Carlos, frábæran nýjan valkost á Kanarí. Nánari upplýsingar á Aventura.is.
Ferðalög Sólin Golf Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Að endurskapa ásýndina á að vera skemmtileg vinna en ekki kvöð Atvinnulíf Áhorf á Eurovision hríðfellur Viðskipti innlent Rannsaka hvort Tesla hafi blekkt neytendur og fjárfesta Viðskipti erlent Taka bóluefni AstraZeneca úr sölu vegna dvínandi eftirspurnar Viðskipti erlent Ópíóíða, róandi- og svefnlyf: „Það geta allir orðið háðir þessum lyfjum ómeðvitað“ Atvinnulíf Kolefnasporlausir bílar fyrir 2030? Polestar er með plan Samstarf „Fólk heldur kannski að það sé saklaust að kaupa eina falsaða tösku“ Atvinnulíf Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Viðskipti innlent Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Viðskipti innlent Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kolefnasporlausir bílar fyrir 2030? Polestar er með plan Neytendur kunna að meta Landlaxinn og Landbleikjuna Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Tölum um neytendamál! Mættu tímanlega í pallaráðgjöf hjá BYKO Bíllinn leggur meðan ég fæ mér drykk - smart #3 reynsluakstur GreenCoat er umhverfisvænasta litaða stálklæðningin sem völ er á Nú er hægt að elta góða veðrið um landið með kortavef Já.is Einblína á trausta ávöxtun til langs tíma Fjölbreytt vöruúrval og ein bestu verð hérlendis Toyota sýnir úrvals fyrirtækjabíla á Verk og vit Nýr Toyota Yaris Hybrid frumsýndur á laugardag Leið eins og stjórnanda geimskips Hver verður iðnaðarmaður ársins 2024? Sjá meira