Viðskipti innlent

Fjögurra tíma bið og starfs­fólkið „draugarnir af sjálfu sér“

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Mikið álag var á starfsfólki Domino's og biðin eftir pítsu reyndist nokkurra klukkustunda. Einhverjir vilja meina að þjóð sem sé svo sólgið í ódýrar pítsur, sé hreinlega biluð.
Mikið álag var á starfsfólki Domino's og biðin eftir pítsu reyndist nokkurra klukkustunda. Einhverjir vilja meina að þjóð sem sé svo sólgið í ódýrar pítsur, sé hreinlega biluð. vísir/grafík

Forstjóri Domino's segir að dagurinn í gær, þegar boðið var upp á þrjátíu ára gamalt verð á pítsum, hafi verið langstærsti dagur fyrirtækisins. Magn pantana hafi verið tvöfalt meira en á stærsta deginum fram að þrjátíu ára afmælinu í gær. Bylgjunni fylgdi auðvitað mikil bið og eru dæmi um að viðskiptavinir hafi þurft að bíða í nokkrar klukkustundir eftir því að pítsan þeirra yrði tilbúin.

Ásgerður Júlíusdóttir, verkefnastjóri og fyrrverandi starfsmaður Domino's er ein þeirra.

„Ég gat ekki annað en hlegið að þessu. Ég vann sjálf á Dominos í mörg ár, þegar ég var í skóla, og man eftir algjörri geðveiki en aldrei svona. Þetta var eitthvað next level,“ segir Ásgerður í samtali við fréttastofu.

„Við maðurinn minn vorum að fara út að borða og ætluðum að panta pítsu fyrir börnin okkar. Ég hugsaði með mér að ég hafi átt að panta kannski aðeins fyrr, en pantaði þó klukkan sex. Uppgefinn biðtími var 125 mínútur en hann breyttist aldrei, ég veit ekki hvort það hafi verið bilun eða hvað.“

„Hræðilegur dagur“

Þá leið og beið en þegar 10 mínútur voru eftir af biðtíma bólaði ekkert á pöntun Ásgerðar í tvo klukkutíma.

„Ég endaði á því að reyna að panta á Pizzunni en þar var líka sturlaður biðtími, svo hringi ég í mömmu mína og bið hana um að redda pulsum handa börnunum. Þá voru þau búin að borða, löngu hætt að nenna að bíða. Svo kemur loks tilkynning um að pítsan sé tilbúin klukkan 10 um kvöldið, þegar við vorum úti að borða.“

Þau hafi samt sem áður ákveðið að sækja pítsuna þar sem þegar væri búið að greiða fyrir hana.

„Ég held að ég hafi aldrei séð jafn bugað starfsfólk, greinilega alveg hræðilegur dagur fyrir þau. Ég man að þetta var oft erfitt í denn en þau voru bara eins og draugarnir af sjálfu sér. „Þetta var hræðilegt, hræðilegur dagur“ sögðu þau þegar ég spurði hvernig þetta hafi gengið. Þetta var ekki mjög ánægjulegt, virðist hafa verið frekar illa skipulagt hjá þeim.“

Domino's frestaði opnun í dag til klukkan þrjú vegna vöruskorts í verslunum. Beðist er velviriðingar á óþægindum sem það kunni að valda á heimasíðu Domino's.

Hámarskafköst höfðu ekki undan

Magnús Hafliðason forstjóri Domino's hafnar því að staðirnir hafi ekki verið nægilega vel undirbúnir.

Magnús Hafliðason, forstjóri Dominos, segir að um hafi verið að stærsta dag Domino's á Íslandi frá upphafi. Aðsend

„Við hefðum ekki getað verið betur undirbúin. Þetta var tvöfalt pantanamagn á við okkar stærsta dag til þessa. Okkur óraði hreinlega ekki fyrir þessu en búðirnar okkar voru eins vel tilbúnar og hægt var. Í rauninni voru þær á hámarksafköstum en það hafði bara ekki undan. Það söfnuðust upp mörg hundruð pítsur í hverri búð,“ segir Magnús í samtali við Vísi.

Rétt fyrir klukkan sjö var ljóst að staðirnir gætu ekki tekið við fleiri pöntunum en á endanum kláraðist allt hráefnið.

„En jafnvel þó að það hefði ekki gerst hefðum við lokað fyrir pantanir ekki mikið síðar. Bara til þess að klára þetta allt á skikkanlegum tíma. Ofnarnir okkar hafa bara ákveðin afköst og við höfum aldrei séð aðra eins bylgju. Þetta var mjög erfitt en starfsfólkið okkar stóð sig eins og hetjur.“

„Í svona magni er alltaf eitthvað sem misferst og auðvitað einhverjir súrir. Við reynum að gera gott úr þannig málum og ég veit að mitt fólk í þjónustuverinu hefur verið í því í gærkvöldi og morgun,“ segir Magnús sem viðurkennir að heppilegra hefði verið að nota íslensku í auglýsingunni sem sagði að boðið væri upp á „orginal matseðil“.

Auglýsingin fyrir afmælisveisluna, sem gerði allt vitlaust.




Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×