Létu þjónana missa brúðkaupstertuna í gólfið Íris Hauksdóttir skrifar 3. ágúst 2023 11:49 Gunnur von Matérn og Gunnlaugur Egilsson voru gefin saman um helgina. Bonni Listaparið Gunnlaugur Egilsson og Gunnur von Matérn gengu í hjónaband síðastliðna helgi. Gunnlaugur segir athöfnina hafa verið fullkomna og hápunktinum hafi verið náð þegar veislugestir supu andköf yfir gervitertu sem brúðhjónin létu útbúa.
Hjónin gengu í það heilaga með heiðinni athöfn í Alþingisgarðinum undir heiðskírum himni. Veislan var haldin á sama stað og þau hittust fyrst, í Iðnó, undir spili Heimilistóna en móðir brúðarinnar, Vigdís Gunnarsdóttir, er einn af stofnendum og söngkona hljómsveitarinnar. Hjónin voru gefin saman með heiðinni athöfn í Alþingisgarðinum.Bonni Dansað fram á rauða nótt Fimmtán ár eru nú liðin síðan þau Gunnur og Gunnlaugur sáust fyrst, á Heimilistónaballi í Iðnó. Það þurfti ekki mikið til. Allt var að hrynja í íslensku efnahagslífi en augu þeirra mættust á ballinu og segir Gunnlaugur það hafa verið ást við fyrstu sýn. Gunnlaugur segir það hafa verið ást við fyrstu sýn þegar hann leit Gunni augum í fyrsta sinn. Bonni „Við hittumst fyrst í græna herberginu baksviðs í Iðnó,“ segir Gunnlaugur og heldur áfram. Athöfnun fór fram undir heiðskírum himni.Bonni „Fimmtán árum síðar erum við aftur komin hingað í Iðnó með fjölskyldu og vinum til þess að fagna ástinni. Það kom aldrei neitt annað til greina en að fá Heimilistóna, sem leiddi okkur svo að segja saman, til að spila fyrir okkur á stóra deginum. Mér finnst hringnum hafa verið náð.“ Hjónin hittust fyrst á balli með Heimilistónum í Iðnó og héldu brúðkaupsveisluna á sama stað fimmtán árum síðar. Bonni Hjónin hafa verið búsett í Stokkhólmi um nokkurt skeið ásamt börnum sínum tveimur þeim, Thor og Tinnu Vigdísi sem og hundinum Freyju og kettinum Óðni. Þar starfar Gunnur sem Head of Digital Strategy fyrir DDB Nord og Gunnlaugur sem sýndarveruleikahönnuður og forritari. Brúðarkjóll Gunnar var hannaður af Justin Alexander.Bonni Hjónin voru bæði einkar glæsileg á brúðkaupsdaginn en brúðarkjóll Gunnar er hannaður af Justin Alexander. Þóra Ólafsdóttir sá um förðun brúðarinnar. Sjálfur sá brúðguminn um að semja brúðardansinn sem var að sögn gesta einn sá eftirminnislegasti. Brúðguminn sá um að semja brúðardansinn sem heppnaðist að hans sögn fáranlega vel.Bonni „Ég vildi hafa fyrsta dansinn okkar undir laginu El duende af plötunni Tu Duende sem Egill Ólafsson, faðir minn, gaf út sem okkar fyrsta dans. Hann heppnaðist fáranlega vel.“ Ógleymanlegt í alla staði Gunnlaugur segir kvöldið hafa verið ógleymanlegt í alla staði og allt hafa gengið eins og í sögu. „Veislustjórarnir Ólafur Egill og Esther Ösp fóru á kostum með uppákomum, ýmsum leikjum og vandræðasögum frá því við vorum lítil. Á efri hæðinni var svo hægt að skella sér í karaoke. Dóra Júlía þeytti skífur langt fram á nótt og undir lokin sameinuðust svo allir á dansgólfinu.“ Hjónin voru alsæl með daginn sinn og veisluna. Bonni Spurður hvernig undirbúningurinn hafi gengið fyrir sig segir Gunnlaugur að dágóður tími hafi farið í að skipurleggja stóra daginn. „Við ákváðum að hafa keppni á milli borða þar sem gestirnir fengu það markmið að kynnast betur. Það voru margar mjög fyndnar uppákomur. Gunnlaugur segir dágóðan tíma hafa farið í að skipurleggja veisluna. Bonni Eitt það besta var sennilega sú hugmynd að við létum baka gervi brúðartertu sem við fengum þjónana til að missa í gólfið. Það var ótrúlega fyndið að sjá gestina missa andlitið og hlæja sig svo máttlausa þegar raunverulega kakan var borin inn.“ Glæsilegur hópur gesta. Bonni Spurð hvað þeim finnist ást vera svarar Gunnur: „Ást er nærvera og öryggi áður en ég sofna í þínum faðmi.“ Gunnur segir ástina vera að sofna örugg í faðmi Gunnlaugs. Bonni Sömu spurningu svarar Gunnlaugur: „Ást er að loka augunum og vera leiddur inn í eitthvað óvænt með þínum kossi.“
Ástin og lífið Brúðkaup Reykjavík Tímamót Mest lesið Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Gagnrýni Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin Lífið Fótboltastelpan sem endaði í kristnum háskóla í suðurríkjunum Lífið „Ætla að verða ógeðslega fræg og ógeðslega rík” Lífið Gunnar Smári látinn heyra það fyrir færslu um Davíð á Sorpu Lífið Stjörnum prýtt afmæli Nínu Lífið 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Lífið samstarf Jólagjafahugmyndir sem hitta í mark Lífið samstarf Deila fyrstu myndunum af hvort öðru Lífið „Mig hefði aldrei grunað að þetta ætti eftir að koma fyrir mig“ Lífið Fleiri fréttir Þessi eru tilnefnd til Golden Globe-verðlauna Gunnar Smári látinn heyra það fyrir færslu um Davíð á Sorpu Stjörnum prýtt afmæli Nínu „Ætla að verða ógeðslega fræg og ógeðslega rík” Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin Fótboltastelpan sem endaði í kristnum háskóla í suðurríkjunum Deila fyrstu myndunum af hvort öðru „Mig hefði aldrei grunað að þetta ætti eftir að koma fyrir mig“ Skelfing greip um sig þegar björgunarbátnum hvolfdi Krakkatían: Borgari, bækur og aðfangadagur jóla Tommi Steindórs og Hrafnhildur trúlofuð Slagsmálin tengd hrósi, ekki framhjáhaldi Fékk veipeitrun Fréttatía vikunnar: Ofbeldi unglinga, Spotify wrapped og Kærleikskúlan Björk beinir skilaboðum til stjórnar RÚV Plötuðu Sigríði Andersen til að stíga í alvöru hundaskít Jólalegasti garðurinn í hverfinu og töff jólaskreytingar inni og úti „RÚV plís ekki vera gungur og aumingjar“ Kveður fasteignir fyrir kroppa Róandi skýjadansari er litur ársins 2026 Mortal Kombat-stjarna látin Hafði leitað árangurslaust að blóðföður sínum í áratugi Chanel og Snorri eiga von á syni Forritararnir borðuðu sveppina til að ná að vera aðeins lengur en hinir Stjórnmálamenn stigu trylltan dans í kjaftfullum Austurbæ „Ég er pínu meyr í dag“ Örlög Ísrael í Eurovision ráðast á aðalfundi sem hefst í dag Erum við of heimsk til að nota gervigreind? Þessi eru tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna Fannar leitaði lengi að transbrauði Sjá meira