Fótbolti

„Haf á milli okkar og við sjáumst allt­of sjaldan“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Óskar Hrafn gat leyft sér að brosa eftir leik.
Óskar Hrafn gat leyft sér að brosa eftir leik. Vísir/Diego

Óskar Hrafn Þorvaldsson segir FC Kaupmannahöfn vera sterkasta andstæðing sem hann hefur mætt sem þjálfari Breiðabliks. Blikar þurfi að vera sjálfum sér trúir í einvíginu og megi ekki líta á verkefnið sem ákveðna biðstofu fyrir næsta einvígi sem þeir eiga bókað falli þeir úr keppni. Það sé þá sérkennilegt að mæta syni sínum, Orra Steini Óskarssyni, sem er leikmaður FCK.

„Þetta er auðvitað stór leikur og stórt verkefni. FCK er frábært lið og þetta er bara frábært tækifæri fyrir leikmenn til að máta sig og sjá hvar þeir standa,“ segir Óskar Hrafn um leik kvöldsins.

Fyrri leikur Breiðabliks við FCK fer fram í kvöld á Kópavogsvelli og hefst klukkan 19:15. Liðin mætast aftur ytra, á Parken í Kaupmannahöfn, í næstu viku.

„Hann [andstæðingurinn] er auðvitað bara gríðarlega sterkur. Þetta er feykilega öflugt lið með einstaklingsgæði og mikla reynslu. Þeir eru tvöfaldir meistarar í Danmörku og komust í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í fyrra. Þeir eru með gríðarlega sigurhefð. Þjálfarinn er ungur að árum, Jacob Neestrup, hefur náð eftirtektarverðum árangri. Þetta er örugglega besta lið sem við höfum mætt síðan ég tók við,“ segir Óskar Hrafn.

Þurfa að vera þeir sjálfir til að fá raunhæfa mynd

Óskar Hrafn segir Blika ekki ætla að víkja frá sinni hugmyndafræði og uppleggi í leik kvöldsins. Öðruvísi fái þeir ekki rétta mynd af því hvar þeir standa á miðað við dönsku meistarana. Hann og Blikarnir allir hlakka til tækifærisins til að bera sig saman við stórveldið.

„Við ætlum að gera allt sem við getum til að vera við sjálfir. Við höfum talað um að það er skemmtilegt að fá tækifæri til að máta sig við betri lið og leiðin til að máta sig á raunhæfan hátt er að gera það sem þú ert búinn að vera að gera,“

„Við þurfum að passa að halda í gildin okkar, vera hugrakkir, þora að halda í boltann og stíga á þá. Ég held að þetta snúist um það að við nálgumst okkar besta leik og nálægt þeirri hugmyndafræði sem við höfum unnið eftir,“

„Við megum ekki vera B eða C útgáfa af einhverjum öðrum sem við höldum að við þurfum að vera vegna þess að við erum að spila við lið sem á að vera betra á pappírnum heldur en við,“ segir Óskar Hrafn.

Klippa: Megi ekki líta á þetta sem biðstofu fyrir næstu keppni

Einvígið megi ekki virka sem biðstofa

Með sigri sínum á Shamrock Rovers í síðustu umferð tryggðu Blikar sér að minnsta kosti þrjú einvígi til viðbótar í Evrópu í sumar. Falli liðið úr leik fyrir FCK fer það yfir í Evrópudeildina og tapi liðið þar fer það í umspil um sæti í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar.

Með sigrinum á Shamrock tryggði Breiðablik sér í versta falli sæti í umspili um sæti í riðlakeppni Sambandsdeildar. Hér má sjá mögulega leið þeirra í riðlakeppni í Evrópu.Vísir

Óskar Hrafn segir mikilvægt að Blikar líti ekki á þetta einvígi sem einskonar biðstofu fyrir næsta einvígi sem yrði í Evrópudeildinni, heldur leggi allt í það að leggja FCK að velli.

„Það hefur verið talað um það, við eigum þrjá sénsa til að komast í riðlakeppnina. Það er mikilvægt að við komum ekki fram við þetta einvígi eins og þetta sé einhver biðstofa fyrir næstu keppni. Við þurfum bara að keyra á þá og sjá hvert það kemur okkur,“ segir Óskar Hrafn.

Feðgarnir geti rætt margt annað en nálgun

Orri Steinn Óskarsson er framherji FCK og hefur fengið einhver tækifæri á undirbúningstímabilinu eftir að hafa verið á láni hjá SönderjyskE á síðustu leiktíð. Óskar Hrafn segir sérkennilegt að mæta syni sínum en hann hlakki til að hitta hann.

Orri Steinn Óskarsson er leikmaður FC Kaupmannahafnar.Getty Images

„Það er auðvitað skrýtið en ég tek þann pól í hæðina að hann er að koma til Íslands og það er langt síðan ég hef séð hann. Það er haf á milli okkar og við sjáumst alltof sjaldan svo ég hlakka bara til að sjá hann,“ segir Óskar.

Leikinn hafi þá vissulega komið upp í samskiptum þeirra feðga í vikunni.

„Auðvitað ber hann á góma. Það væri óhjákvæmilegt, við erum báðir miklir fótboltaáhugamenn og tölum um þá leiki sem eru fram undan. Eðlilega hefur hann borið á góma en við höfum ekki talað um hann í jafnmiklum smáatriðum og við tölum um aðra leiki sem hvor okkar er að spila.“

Þú heldur spilunum þétt að þér?

„Já, ég er ekki að gefa honum upp leikplanið og hann ekki þeirra. Enda myndi ég vera mjög svekktur ef það væri raunin. Það er fullt annað hægt að tala um en hvernig menn ætla að nálgast leikina,“ segir Óskar Hrafn.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum að ofan.

Leikur Breiðabliks og FC Kaupmannahafnar hefst klukkan 19:15 í kvöld. Bein útsending hefst hálftíma fyrir leik, klukkan 18:45 á Stöð 2 Sport.


Tengdar fréttir

Ísak Berg­mann um leikinn gegn Blikum: Ætlum að nýta þeirra veik­leika

„Það er mjög gaman en mjög skrýtið. Þegar maður kemur heim er maður að undirbúa sig fyrir landsleiki eða í frí. Það er svolítið öðruvísi að vera í hinu liðinu núna, verð ég að segja,“ sagði Ísak Bergmann Jóhannesson, miðjumaður FC Kaupmannahafnar, í aðdraganda leiks sinna manna á Kópavogsvelli annað kvöld.

Oli­ver fyrir ein­vígið gegn FCK: Þeir hafa í rauninni öllu að tapa

„Gífurlega spenntir, þetta er eitthvað sem manni langar að gera og við getum eiginlega ekki beðið að sýna okkar gæði gegn gæðum þessara leikmanna,“ sagði Oliver Sigurjónsson, miðjumaður Breiðabliks, um viðureign morgundagsins gegn FC Kaupmannahöfn í forkeppni Meistaradeildar Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×