Viðskipti erlent

Fuglinn Larry látinn flakka fyrir X

Samúel Karl Ólason skrifar
Hið nýja vörumerki X, sem verður nýtt nafn Twitter.
Hið nýja vörumerki X, sem verður nýtt nafn Twitter. Getty/Costfoto

Elon Musk, auðugasti maður heims, hefur opinberaði nýtt vörumerki Twitter, sem þegar er byrjað að birtast á internetinu. Twitter mun verða að X og vörumerkið er að breytast í samræmi við það. Fuglinn Larry, sem hefur fylgt Twitter um árabil, mun fljúga sína eigin leið.

Nafn fuglsins Larry er tilvísun í Larry Bird, einn besta körfuboltamann allra tíma.

Linda Yaccarino, forstjóri Twitter, tísti um X í gærkvöldi og opinberaði svo vörumerkið í morgun. Musk hefur áður sagt að hann vilji skapa svokallað „ofur-forrit“ og að það eigi að heita X. Hefur hann líkt hugmynd sinni við forrit eins og hið gífurlega vinsæla forrit WeChat í Kína.

Í röð tísta sem hún tísti í gærkvöldi, sagði Yaccarino meðal annars að notendur X ættu að geta notað forritið til að senda skilaboð, hlusta á tónlist, horfa á myndbönd og til að greiða fyrir vörur og þjónustu. Hún sagði að X yrði stýrt af gervigreind og myndi tengja heiminn með leiðum sem við gætum ekki ímyndað okkur enn.

Tíst eiga nú að kallast X, samkvæmt Musk. Á íslensku gæti það að birta tíst kallast „að exa“. Hann segir einnig að hugsa þurfi upp á nýtt hvað það kallast að deila exum annarra, en það hefur kallast að „rítvíta“. Það virðist gefa til kynna að Musk hafi ekki hugsað breytinguna til enda. Hann sagði einnig í nótt að vörumerki X yrði líklega breytt aftur á næstunni.

Á árum áður stofnaði Musk bankaþjónustufyrirtæki sem hét X. com en það varð síðar að PayPal, eftir samruna við annað fyrirtæki. Musk hefur sagt að það að kaupa Twitter gæti fært hann nær upprunalegu sýn hans á X.com.

Eins og frægt er keypti Musk Twitter í fyrra á 44 milljarða dala en það samsvarar tæpum sex billjónum króna, miðað við gengið í dag. Eftir að hann skrifaði undir kaupsamning reyndi Musk ítrekað að komast undan honum og sleppa við kaupin. Hann sakaði stjórn Twitter meðal annars um að hafa ekki útvegað sér gögn sem hann bað um varðandi raunverulegan fjölda falskra reikninga, eða botta, á Twitter.

Við kaupin stigmögnuðust skuldir Twitter og vaxtagreiðslur hækkuðu til muna. Þá hefur Musk sagt upp meira en helmingi starfsmanna fyrirtækisins og hefur hann verið sakaður um að greiða ekki reikninga og leigu, svo eitthvað sé nefnt.

CNN sagði frá því í síðustu viku að starfsmenn Twitter á skrifstofu fyrirtækisins í Afríku hefðu verið reknir eins og svo margir aðrir, þeir hefðu hins vegar ekki fengið neinn uppsagnarfrest greiddan, eins og fyrrverandi starfsmenn í Evrópu og Norður-Ameríku. Fyrirspurnum starfsmanna fyrirtækisins í Afríku hefur ekki verið svarað af núverandi yfirmönnum Twitter.

Þá hleypti Musk notendum sem höfðu verið bannaðir á Twitter aftur þar inn en stjórnun hans á Twitter hefur einkennst af mikilli óreiðu. Auglýsendur drógu úr auglýsingakaupum á Twitter og viðurkenndi Musk nýverið að illa hefði gengið að fá þá til að kaupa auglýsingar þar aftur.

Sjá einnig: Óreiðan virðist ráða ríkjum hjá Twitter

Musk hefur reynt að auka tekjur fyrirtækisins með því að selja áskrift að samfélagsmiðlinum. Hann hefur takmarkað þann fjölda tísta sem fólk getur séð á samfélagsmiðlinum og er einnig verið að takmarka hvað notendur geta sent öðrum notendum mörg skilaboð, svo eitthvað sé nefnt.

Notendur geta komist hjá þessum takmörkunum, flestum, með því að greiða áskriftargjald. Óánægja hefur aukist meðal notenda en nýtt forrit Meta, sem kallast Threads og á að keppa við Twitter varð eitt vinsælasta forrit sem litið hefur dagsins ljós vestanhafs.

Samkvæmt frétt Wall Street Journal er verðmæti Twitter áætlað minna en helmingurinn af því sem Musk borgaði fyrir fyrirtækið á sínum tíma.


Tengdar fréttir

Vill skipta fuglinum út fyrir X

Elon Musk, ríkasti maður heims og eigandi Twitter, tilkynnti í nótt að senn muni Twitter kveðja helsta vörumerki sitt og „alla fuglana“ í kjölfarið. Breytinga gæti verið að vænta strax í dag.

Twitter hótar lögsókn

Samfélagsmiðillinn Twitter hefur hótað samfélagsmiðlafyrirtækinu Meta lögsókn vegna nýs forrits sem kallast Threads eða „Þræðir“. Segir Twitter að uppbygging miðilsins gangi í berhögg við höfundarrétt þess.

Twitter-líki Meta ekki að­gengi­legt í Evrópu

Nýja samfélagsmiðlaforritið Threads sem á að keppa við Twitter verður ekki aðgengilegt í Evrópu í fyrirsjáanlegri framtíð. Ástæðan er strangar persónuverndarreglur sem gilda í Evrópusambandinu en Threads safnar alls kyns persónuupplýsingum um notendur sína.

Linda Yaccarino ráðin nýr forstjóri Twitter

Linda Yaccarino er konan sem Elon Musk, eigandi Twitter, hefur ráðið sem forstjóra Twitter. Musk hefur verið starfandi forstjóri fyrirtækisins síðan hann keypti allt hlutafé í því í október í fyrra. Yaccarino mun að sögn Musk hefja störf eftir sex vikur.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×