Neytendur

„Þetta er 300 prósent hækkun“

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Endurnýjuð sundlaug opnaði aftur í maí undir nafninu Lindin.
Endurnýjuð sundlaug opnaði aftur í maí undir nafninu Lindin.

Þriggja manna fjöl­skylda sem ætlaði sér að fara í sund­laugina í Húsa­felli í dag hætti við vegna verð­lags. Fjöl­skyldan segist hafa verið reglu­legir gestir í lauginni undan­farin ár en segir nú­verandi verð ofan í laugina allt of hátt. Rekstraraðili segir laugina einkarekna, hún fái enga niðurgreiðslu frá sveitarfélaginu eða öðrum og þá sé komið til móts við gesti með sundkortum auk þess sem gestum hótels og tjaldsvæða sé boðinn afsláttur í margskonar formi.

„Við komum hérna í hitt í fyrra og þá kostaði 1200 krónur að fara ofan í. Nú kostar það 3800 krónur. Þetta er 300 prósent hækkun,“ segir Óskar Óskars­son, sem ætlaði sér að heim­sækja laugina í dag á­samt eigin­konu sinni og barni.

Eigin­kona hans, Kristín Ragn­hildur Sigurðar­dóttir, vakti at­hygli á hækkuninni inni á Face­book hópnum Fjár­mála­tips í dag. Færslan hefur vakið mikla at­hygli.

Ekki margir á ferð

„Ég kíkti yfir grind­verkið og ég sá ekki betur en að þarna væru bara tvær hræður og það á sunnu­degi. Ég hugsaði með mér að við værum ekki ein um það að hafa hætt við að fara vegna þessa verðs,“ segir Óskar.

Laugin í Húsa­felli var endur­nýjuð í vetur og hefur nú hlotið nafnið Lindin. Skessu­horn greindi frá því þegar hún opnaði aftur í maí en í frétt miðilsins kom fram að að­staða í sund­laugar­húsi hefði verið bætt sem og úti­svæðið við laugina. Er lauginni ætlað að þjóna hótel­gestum á Húsa­felli en einnig vera opin al­menningi.

Hjónin segja að sér þyki afar leitt hve hátt verð sé tekið af al­mennum sund­laugar­gestum. Þetta hafi verið þeirra upp­á­halds sund­laug í gegnum árin sem þau hafi heim­sótt reglu­lega.

„Þegar maður er með fjöl­skyldu þá er þetta allt­of mikið. Ég velti bara fyrir mér hvort það sé verið að láta al­menning á Ís­landi, eða alla vega túr­istana, borga Co­vid reikninginn?“ spyr Óskar.

„Hvernig verður þetta á næsta ári? Eða á þar­næsta ári? Hvert er verð­lagið hérna á Ís­landi að fara? Svo mæta ein­hverjir hag­fræðingar og menntaðir bis­ness gúrúar og bulla og rugla í tíma og ó­tíma um að verð­bólgan sé að lækka. Þetta bendir ekki til þess.“

Fjölskyldan var gáttuð á verðinu í Lindinni í Húsafelli.

Segir um að ræða ódýrustu afþreyingarlaug landsins

Unnar Bergþórsson, framkvæmdarstjóri Hótel Húsafells, rekstraraðila Lindarinnar, segir í skriflegu svari til Vísis að sundlaugin sé einkarekin. Hún fái þannig engar niðurgreiðslur frá sveitarfélaginu eða öðrum.

„Sundlaugin var rekin með sama sniði í tugi ára og var orðin ansi lúin og innviðir úr sér gengnir svo ekki var hægt að halda rekstri áfram með óbreyttu sniði. Eigendur ákváðu því að fara í gagngerar endurbætur og breyta aðstöðu úr sundlaug í afþreyingarlaug eins og eru víðsvegar hringinn í kringum landið og auka upplifun og gæði.“

Hann segir  framkvæmdir hafa tekið rúmlega eitt ár og kostað vel á annað hundrað milljónir. Allir innviðir séu nýir og eins og best verður á kosið, laugar endurbættar, aðstöðuhús og klefar endurbættur frá grunni í stíl við gæði Hótel Húsafells, auk þess sem bætt hefur verið við gufubaði og köldum pottum.

„Nú þegar Lindin, ný afþreyingar laug á Húsafelli hefur verið opnuð er hún ódýrasta afþreyingarlaug landsins. Ekki er eðlilegt að bera saman sundlaugar reknar af opinberum aðilum.“

Þá sé gestum boðið upp á 5 til 20 skipta kort og með afslætti sem sé á bilinu 30 til 55 prósent sé verð fyrir hvert skiptið komið í 2090 krónur. Gestum hótels og tjaldsvæða sé auk þess boðinn afsláttur í margskonar formi, sem ekki þekkist í öðrum afþreyingarlaugum.

Fréttin hefur verið uppfærð með svörum rekstraraðila Lindarinnar í Húsafelli. 





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×