Í umfjöllun BBC um miðilinn kemur fram að hann verði tengdur við Instagram og verði frír í notkun. Af skjáskotum að dæma af hinum nýja miðli verður hann keimlíkur Twitter en rekstur þess miðils hefur gengið erfiðlega upp á síðkastið.
Elon Musk, milljarðamæringurinn og eigandi Twitter, tilkynnti til að mynda síðastliðinn laugardag að hann hefði takmarkað aðgengi notenda þess að tístum. Almennir notendur sem ekki hafa greitt fyrir ákveðin fríðindi á miðlinum fengu þannig einungis að skoða 600 tíst.
Bar Musk fyrir sig að það væri til þess að stemma stigu við gagnasöfnun gervigreindarforrita en Musk sagði hundruð fyrirtækja stunda slíka söfnun og sækja þannig hart að samfélagsmiðlinum.
Á sama tíma hefur Musk gert notendum Twitter að greiða fyrir ýmsa þjónustu sem áður var frír, svo sem eins og TweetDeck notendaviðmótið sem gerir notendum kleyft að skoða tugi og jafnvel hundruð tísta á sama tíma.
Mark Zuckerberg, eigandi Meta og Elon Musk hafa átt í misalvarlegum orðaskeytingum á samfélagsmiðlum undanfarnar vikur. Hafa miðlar líkt og BBC rekið það til ákvörðunar Zuckerberg og félaga í Meta að ýta úr vör Threads samfélagsmiðlinum. Þeir Zuckerberg og Musk hafa meðal annars samþykkt að mætast í slag í boxhring í Las Vegas, en svo virðist vera sem að lítil alvara sé þar á ferð.