Barcelona Evrópu­meistari eftir magnaða endur­komu

Smári Jökull Jónsson skrifar
 Alexia Putellas fyrirliði Barcelona lyftir hér Meistaradeildarbikarnum.
Alexia Putellas fyrirliði Barcelona lyftir hér Meistaradeildarbikarnum. Vísir/Getty

Barcelona er Evrópumeistari í knattspyrnu eftir 3-2 sigur á Wolfsburg í úrslitaleik í Eindhoven í dag. Wolfsburg leiddi 2-0 í hálfleik en frábær endurkoma Barca í síðari hálfleik tryggði þeim sigurinn.

Sveindís Jane Jónsdóttir var í byrjunarliði Wolfsburg í dag sem byrjaði leikinn frábærlega. Ewa Pajor skoraði strax á 4. mínútu leiksins og á 37. mínútu skoraði Alexandra Popp annað mark þýska liðsins með skalla eftir góða fyrirgjöf frá Pajor.

Sveindís Jane með boltann í leiknum í dag.Vísir/Getty

Barcelona var meira með boltann í fyrri hálfleiknum og skapaði sér færi en Wolfsburg stóð áhlaup þeirra af sér.

Barcelona byrjaði síðari hálfleikinn hins vegar af miklum krafti. Patri Gujiarro minnkaði muninn á 49. mínútu og einni mínútu síðar var Gujiarro búin að jafna metin.

Barcelona hélt áfram að sækja og á 70. mínútu skoraði hin sænska Fridolina Rolfö sigurmark liðsins. Wolfsburg hafði ekki krafta í að sækja jöfnunarmark undir lokin og Barcelona sigldi sigrinum nokkuð þægilega í höfn.

Barcelona nær því titlinum á nýjan leik en liðið tapaði í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í fyrra fyrir Lyon.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira