- Sporðdrekinn er frá 24. október til 21. nóvember.
Á þessu sumri skaltu skoða allt sem fær þig til að líða betur og vera með opinn huga gagnvart atriðum sem þér finnast vera mjög fjarlæg þér. Opnaðu faðminn og bjóddu bókstaflega inn nýrri atburðarás, nýjum upplifunum og segðu bara „já ekkert mál“ og lífið færir þér það sem þér hefur fundist þig vanta.
Síðustu mánuðir hafa verið eins og hvellhettur, þér hefur oft brugðið og þú hefur hugsað, hvað er eiginlega að gerast. En frá fjórða júní þar sem blessaða fulla tunglið er í Bogmanninum, þá sérðu af hverju og hvers vegna lífið hefur verið svona sveiflukennt. Allt sem gerist hjá þér hefur tilgang og ekkert sem að þú hefur þurft að horfast í augu við er tilgangslaust.
Allur júnímánuður færir þér sterkari trú á sjálfan þig og þó að gamlar tilfinningar heimsæki þig öðru hverju, þá er það ekkert annað en leiðinleg hugsun sem þú getur sett stopp á með því að segja ákveðið og upphátt, NEI, NEI, því þá skiptirðu um rás. Þetta verður auðveldara og auðveldara eftir því sem tíminn líður. Þú öðlast andlega visku og færð fyrirboða eins og þú sért Shaman og allt það tengist útiveru, jörðinni, sjónum og kraftinum í öllu því yfirnáttúrlega sem þar býr.
Þú sérð það besta í öllum, þú ert einlægur og talar frá hjartanu og þess vegna hittirðu mann alltaf í hjartastað. Þú hefur svo mikinn tilgang, þó að þú vitir ekki nákvæmlega hver hann er þá ertu samt að fara hárrétta leið að útkomunni.

- Bill Gates, stofnandi Microsoft, 28. október
- Þórólfur Guðnason, 28. október
- Winona Ryder, leikkona, 29. október
- Kendall Jenner, raunveruleikastjarna, 3. nóvember
- Leonardo Dicaprio, leikari, 11. nóvember
- Whoopi Goldberg, leikkona, 13. nóvember
- Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, 20. nóvember
- Björk Guðmundsdóttir, 21 nóvember