Meta í samkeppni við Twitter Samúel Karl Ólason skrifar 21. maí 2023 10:29 Meta er sagt ætla að opinbera nýjan samfélagsmiðil til höfuðs Twitter í sumar. EPA/JOHN G. MABANGLO Útlit er fyrir að Meta ætli í samkeppni við Twitter. Fregnir hafa borist af því að fyrirtækið muni gefa út í sumar forrit, sem tengist Instagram, þar sem notendur geta varpað fram stuttum textaskilaboðum til fylgjenda sinna og annarra. Til stendur að taka miðilinn í notkun í sumar.
Sjálfstæður blaðamaður birti á dögunum mynd sem á að vera af markaðskynningu Meta á forritinu nýja. Það hefur enn ekki fengið nafn en er kallað P92 eða Barcelona innan veggja Meta. Kynningin virðist beinast að þekktu fólki sem Meta er að reyna að fá á nýja samfélagsmiðilinn og er til dæmis bent á að auðvelt sé að yfirfæra hverjum maður fylgir á milli forrita Meta. Þar segir einni að miðillinn nýi verði að hluta til tengdur öðrum eins og Mastodon, sem geri notendum auðveldara að öðlast nýja fylgjendur. Skjáskot af þessari kynningu má sjá hér að neðan í tísti blaðamannsins Liu Haberman. Nýi miðillinn lítur út eins og nokkurs konar blanda af Instagram og Twitter. Based on a (somewhat blurry) example I got, Meta's new app looks a lot like Twitter.So, could this take over all the Twitter screenshots we've been seeing on the Feed lately? Maybe. It s impossible to predict how audiences will respond but this could be an alternative. pic.twitter.com/xgQa1kUjCl— Lia Haberman (@liahaberman) May 19, 2023 Í frétt tæknimiðilsins The Verge segir að þessi nýi samfélagsmiðill, sem tengist Instagram, muni mögulega auka vinsældir þess síðarnefnda til muna. Twitter hefur átt í þó nokkrum vandræðum síðan auðjöfurinn Elon Musk keypti samfélagsmiðilinn í fyrra. Við kaupin jókst skuldsetning fyrirtækisins mjög en Musk hefur gengið illa að ná til auglýsenda í Bandaríkjunum. Sjá einnig: Linda Yaccarino ráðin nýr forstjóri Twitter Notendur hafa einnig verið að leita annað samhliða auknum fjölda nettrölla og þess að Musk hefur hleypt öfgafólki sem hafði verið bannað á Twitter aftur þar inn og hafa samfélagsmiðlar sambærilegir Twitter, eins og Mastodon og Bluesky notið aukinna vinsælda. Með því að nota nýja miðilinn og tengja hann Instagram sleppur fólk þó við að finna nýja fylgjendur og aðra til að fylgja. TechCrunch segir annan málsmetandi aðila hafa deilt svipuðum upplýsingum um nýja samfélagsmiðil Meta en til stendur að taka hann í notkun í sumar. Talsmenn Meta hafa ekki viljað tjá sig um fregnirnar við fjölmiðla ytra en hafa ekki neitað þeim.
Meta Facebook Twitter Samfélagsmiðlar Mest lesið Hörður boðar óvænt til starfsmannafundar Viðskipti innlent Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Framúrskarandi fyrirtæki Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Viðskipti innlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Samherji selur Margréti til Færeyja Viðskipti innlent Spá óbreyttum vöxtum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira