Neytendur

Skamma Olís vegna HM-af­láttar sem gilti bara á sumum ÓB-stöðvum

Atli Ísleifsson skrifar
Olís, sem rekur ÓB-stöðvarnar, auglýsti afslátt í tengslum við íslenska landsliðið á HM í handbolta sem fram fór í Svíþjóð fyrr á árinu.
Olís, sem rekur ÓB-stöðvarnar, auglýsti afslátt í tengslum við íslenska landsliðið á HM í handbolta sem fram fór í Svíþjóð fyrr á árinu. Vísir/Vilhelm

Neytendastofa hefur slegið á fingur Olís vegna auglýsinga um afslátt á eldsneyti á völdum sjálfsafgreiðslustöðvum ÓB. Félagið auglýsti þar afslátt af eldsneyti, sem tengdist úrslitum íslenska landsliðsins í handbolta á heimsmeistaramótinu sem fram fór í Svíþjóð í janúar síðastliðinn, án þess að tekið var fram að afslátturinn gilti ekki á öllum sjálfsafgreiðslustöðvum ÓB. Hefur félaginu verið bannað að viðhafa slíka viðskiptahætti.

Félagið auglýsti jafnframt afslátt á vefsíðu félagsins þar sem tilkynnt var með stjörnumerktum texta með smáu letri að afslátturinn gilti ekki á þeim sjálfsafgreiðslustöðvum þar sem í gildi væri lægsta verð ÓB.

Í ákvörðun Neytendstofu segir að í svörum Olís hafi komið fram að ef smellt hafi verið á auglýsingarnar hafi birst borði þar sem komið hafi fram að viðkomandi afsláttur gilti ekki á tilteknum stöðvum ÓB. Sömuleiðis hafi skilaboð verið send á viðskiptamenn félagsins þar sem þetta kom fram og því telji félagið að auglýsingarnar hafi ekki verið til þess fallnar að blekkja neytendur.

Neytendastofa komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að með því að taka ekki fram í öllum auglýsingum að afslátturinn væri ekki í boði á ákveðnum sölustöðum hafi Olís viðhaft villandi viðskiptahætti. 

Auk þess hafi Neytendastofa komist að þeirri niðurstöðu að upplýsingar um takmarkanir á afsláttum hafi ekki verið komið á framfæri með nægjanlega skýrum og greinargóðum hætti. Því hafi stofnunin bannað Olís að viðhafa umrædda viðskiptahætti.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×