Viðskipti erlent

Musk segist hafa fundið konu til að stýra Twitter

Kjartan Kjartansson skrifar
Höfuðstöðvar Twitter í San Francisco í Kaliforníu.
Höfuðstöðvar Twitter í San Francisco í Kaliforníu. AP/Jeff Chiu

Kona tekur við sem forstjóri samfélagsmiðilsins Twitter ef eitthvað er að marka Elon Musk, eiganda og starfandi forstjóra miðilsins. Hann segist sjálfur ætla að halda áfram sem starfandi stjórnarformaður og tæknistjóri Twitter.

Musk tísti því í kvöld að hann hefði ráðið nýjan forstjóra Twitter og X corp, fyrirtækisins sem hann lét taka samfélagsmiðilinn yfir. „Hún“ byrji eftir um það bil sex vikur.

„Mitt hlutverk breytist yfir í að vera starfandi stjórnarformaður (e. executive chairman) og tæknistjóri með umsjón með vöru, hugbúnaði og kerfisstjórn,“ tísti Musk.

Twitter hefur leitað að forstjóra um margra mánaða skeið. Musk lýsti því yfir fyrir dómi rétt eftir að hann keypti samfélagsmiðilinn fyrir 44 milljarða dollara í nóvember að hann hefði ekki hug á að vera forstjóri fyrirtækis. Hann tísti í desember að ætlaði sér að segja af sér sem forstjóri um leið og hann fyndi einhvern sem væri nógu „vitlaus“ til að taka starfið að sér.

AP-fréttastofan segir að hlutabréf í Tesla, rafbílafyrirtæki Musk, hafi hækkað um tvö stig eftir tilkynninguna í dag. Hluthafar Tesla hafa verið með böggum hildar yfir því hversu mikinn tíma og orku Musk hefur sett í samfélagsmiðilinn undanfarna mánuði.


Tengdar fréttir

Musk með­al þeirr­a sem dreifð­u sam­sær­is­kenn­ing­um

Lögreglan í Allen í Texas hefur staðfest að Mauricio Garcia, sem skaut átta til bana og særði sjö í verslunarmiðstöð í bænum um helgina, var skreyttur nasista húðflúrum. Sömuleiðis hafði hann lýst yfir aðdáun sinni á nasistum á netinu.

Stjörnur ó­sáttar við að vera bendlaðar við Twitter-á­skrift

Samfélagsmiðillinn Twitter heldur áfram að krukka í hvernig hann útdeilir staðfestingamerkjum til notenda sinna. Heimsþekktir einstaklingar sem misstu merkið eftir nýlegar breytingar fengu það skyndilega til baka. Þeir eru ekki allir sáttir þar sem Twitter gefur ranglega í skyn að þeir hafi greitt fyrir þjónustuna.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×