Atvinnulíf

Apple Notes perri sem spilar við kærustuna yfir morgunmatnum

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Egill Fannar Halldórsson, framkvæmdastjóri Górilla Vöruhúss, byrjar daginn á því að borða croissant og spila Backgammon með kærustunni áður en þau halda til vinnu. Egill telur sig vera yfir meðallagi fyndinn og gefur sjálfum sér einkunnina 7,5 sem svar við spurningunni.
Egill Fannar Halldórsson, framkvæmdastjóri Górilla Vöruhúss, byrjar daginn á því að borða croissant og spila Backgammon með kærustunni áður en þau halda til vinnu. Egill telur sig vera yfir meðallagi fyndinn og gefur sjálfum sér einkunnina 7,5 sem svar við spurningunni. Vísir/Vilhelm

Egill Halldórsson, eigandi Wake Up Reykjavík, Górillu Vöruhúss og framkvæmdastjóri þess síðarnefnda, ætlar að gefa sér það að teljast yfir meðallagi fyndinn. Síðustu mánuði hafa hann og kærastan byrjað daginn á því að borða croissant saman og spila Backgammon áður en þau fara í vinnuna.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Ég vakna yfirleitt klukkan sjö alla daga vikunnar. Ég er mjög mikil morgunmanneskja, vakna í góðu skapi og þykir þetta yfirleitt besti tími dagsins, bæði á virkum dögum og um helgar. Í mörg ár vaknaði ég mikið fyrr en undanfarið legg ég upp með að ná alltaf sjö og hálftum til átta tíma svefni og þá hentar vel að vakna á þessum tíma.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

Í nokkra mánuði núna höfum við Íris kærastan mín átt alveg yndislega morgunhefð þar sem við fáum okkur kaffi saman, borðum croissant og spilum Backgammon áður en við förum í vinnuna. 

Annaðhvort hellum við upp á bolla heima eða förum í göngutúr á næsta kaffihús. 

Ekkert smá kósý samverustund og góð byrjun á deginum … sérstaklega ef maður nær að vinna leik dagsins!“

Á skalanum 1-10: Hversu fyndinn ertu?

„Og sæll, þetta er rosaleg spurning haha! Ég ætla gefa mér „above average" en samt diplómatíska 7,5! Það er yfirleitt mjög stutt í grín hjá mér og helst svolítið svartur húmor eða eitthvað sem er bannað að segja. Mér finnst það mjög fyndið. En húmor er svo rosalega afstæður - mig langar að segja að ég geti verið mjög fyndinn í kringum mína nánustu en svo er alveg örugglega fullt af fólki sem hefur ekkert gaman að mér.“

Egill leggur mikla áherslu á að ná 7,5-8 klukkustunda svefni og í skipulagi segist hann vera algjör Apple Notes perri. Stóra skipulagið er í Google Calendar en í Notes heldur hann utan um markmið, verkefnalista, hugmyndir og fleira.Vísir/Vilhelm

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Við erum á lokametrunum með að flytja Górillu Vöruhús upp á Korputorg í fjórfalt stærra húsnæði! Það hefur verið stóra verkefnið síðustu tólf mánuði.

Annars er mitt daglega starf mjög skemmtilegt og er fyrst og fremst fólgið í því að hitta frumvöðla og stjórnendur fyrirtækja og hjálpa þeim að gera reksturinn sinn betri!“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

Ég er algjör Apple Notes perri og skrifa þar niður allt sem skiptir máli. Stóra skipulagið er í Google Calendar eins og fundir, stór verkefni og slíkt. 

En svo er ég með mörg hundruð glugga í gangi í Notes þar sem ég held utan um markmið, verkefni, to-do lista, hugmyndir og svo framvegis.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Við erum að yfirleitt að loka augunum um og uppúr klukkan ellefu en nú fer alltaf að vera erfiðara og erfiðara að skríða upp í rúm þegar það er orðið svona bjart á kvöldin.“


Tengdar fréttir

Samsvarar sig best við Grím skipstjóra í Verbúðinni

Matti Osvald markþjálfi og fyrirlesari segir skipulagið sitt ganga út á að halda ekki utan um verkefni í höfðinu, heldur tæma höfuðið og setja utanumhaldið frekar í kerfi sem hausinn treystir. Matti samsvarar sig best við Grím skipstjóra í Verbúðinni en það er fyrst og fremst vegna þess að Grímur minnir hann svo á pabba sinn.

„Að þurfa að harka fyrir sínu sem íþróttakona er orðið vel þreytt“

Kristín Sverrisdóttir verkstjóri í framleiðsludeild hjá Össur og ráðstefnustýra UAK (Ungra athafnakvenna) hefur frá Covid hafið daginn á hugmyndafræði sem hún lærði úr bókinni Miracle Morning. Kristín hefur líka vanið sig á að vera með slökkt á öppum í símanum sínum fyrir klukkan átta á morgnana.

Spilasjúkar mæðgur sem byrja daginn á spili og spjalli

Það ber ekki öllum saman um það hvenær Tótla I. Sæmundsdóttir, fræðslustýra Samtakanna 78 vaknar á morgnana. Sjálf segist hún vakna klukkan sex en dæturnar eru því alls ekki sammála. Tótla segist hrærast í skipulögðu kaósi, með góða yfirsýn yfir skipulagið sem þó enginn annar gæti gengið inn í.

Getur verið fyndið að lesa tölvupósta frá sjálfum sér á morgnana

Björn Brynjúlfur Björnsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Moodup og Frama, segir það geta verið fyndið að opna tölvupósta frá sjálfum sér á morgnana og átta sig á því að góða hugmyndin sem hann sendi sjálfum sér til minnis kvöldinu áður er kannski ekkert eins góð þegar hann vaknar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×