Atvinnulíf

„Sítt að aftan“ tískan kom út eins og hann hefði sofið með rúllur

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Duran Duran tímabilið er það fyrsta sem kemur upp í huga Jóns Jósafats Björnssonar, framkvæmdatjóra Dale Carnegie, þegar hann er spurður um eftirminnileg tískutímabil og almennt segir Jón '80 tískuna hafa verið eitt stórt tískuslys sem hann þó tók fullan þátt í. 
Duran Duran tímabilið er það fyrsta sem kemur upp í huga Jóns Jósafats Björnssonar, framkvæmdatjóra Dale Carnegie, þegar hann er spurður um eftirminnileg tískutímabil og almennt segir Jón '80 tískuna hafa verið eitt stórt tískuslys sem hann þó tók fullan þátt í. 

Jón Jósafat Björnsson, framkvæmdastjóri Dale Carnegie, er einn þeirra sem á það til að sofa fyrir framan sjónvarpið á kvöldin, áður en hann síðan fer inn að sofa um klukkan ellefu. Jón fer yfir dagskrá dagsins í baði á morgnana.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Fyrst hálf-vakna ég klukkan hálf sex þegar konan fer á æfingu og svo al-vakna ég klukkan hálf sjö. Það er líka snilld að hálf-sofa frá hálf sex til hálf sjö yfir Podcasti en ég er frétta, sögu-podcast-fíkill.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Tek fyrsta kaffibollann á meðan það rennur í baðið og smá morgunverð. Svo tek ég alltaf fimmtán mínútna bað og fer yfir dagskrá dagsins í huganum. Bað er einhver fallegasta uppgötvun mannkyns.“

Getur þú nefnt eitthvað tískutímabil frá unglingsárum sem var einkennandi í fatnaði eða hártísku sem þér finnst alltaf jafn fyndið að rifja upp í dag – en fannst rosa flott á þeim tíma?

Duran Duran tímabilið hlýtur að koma upp í hugann ekki síst vegna þess að þegar ég reyndi að safna „sítt að aftan“ krullaðist hárið á mér eins og ég hafi sofið með rúllur um nóttina. 

Í baksýnis speglinum er síðan ´80 tískan eitt risa stórt tískuslys sem ég tók fullan þátt í.”

Jón segir baðið eina bestu uppgötvun sem til er, enda fær hann sér fyrsta kaffibollann á morgnana á meðan það rennur í baðið en tekur sér síðan korter í að fara yfir dagskrá dagsins á meðan hann er í baði. Jón segir verkefni í vinnunni meðal annars taka mið af þeim breytingum sem orðið hafa á vinnustöðum í kjölfar Covid.

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Hjá Dale Carnegie fer mestur tíminn núna í að vinna með mannauðsfólki og stjórnendum í að auka eldmóð og árangur starfsmanna eftir Covid. Þarfir viðskiptavina okkar hafa gjörbreyst á þremur árum.

Meðfram þessu erum við svo sjálf í stefnumótunarvinnu með Dale til að gera business-módelið enn betra fyrir þær breytingar sem eru handan við hornið. Við erum að innleiða eVolve sem er LMS kerfi með námskeiðunum, þróun á live online þjálfun er á fullu og mikið af nýjum vörum að koma sem við erum að undirbúa.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

Í fullkomna heiminum geri ég sirka þrjú til fimm vikumarkmið sem skipta verulegu máli og svo stefni ég á að hafa inboxið tómt í lok dags. 

Í raunheimum fer þetta oftar en ekki ,,í kál“ vegna óvæntra mála en við erum lítið fyrirtæki og margir sinna mörgu. 

En þá er mikilvægt að tala vel við sjálfan sig „og fara aftur á bak og slá í klárinn!“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Ég fer yfirleitt í rúmið fyrir ellefu á kvöldin en oft er þetta spurningin um hvað lengi ég hef þá verið sofandi fyrir fram sjónvarpið fram að þeim tíma.“


Tengdar fréttir

Spilasjúkar mæðgur sem byrja daginn á spili og spjalli

Það ber ekki öllum saman um það hvenær Tótla I. Sæmundsdóttir, fræðslustýra Samtakanna 78 vaknar á morgnana. Sjálf segist hún vakna klukkan sex en dæturnar eru því alls ekki sammála. Tótla segist hrærast í skipulögðu kaósi, með góða yfirsýn yfir skipulagið sem þó enginn annar gæti gengið inn í.

Getur verið fyndið að lesa tölvupósta frá sjálfum sér á morgnana

Björn Brynjúlfur Björnsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Moodup og Frama, segir það geta verið fyndið að opna tölvupósta frá sjálfum sér á morgnana og átta sig á því að góða hugmyndin sem hann sendi sjálfum sér til minnis kvöldinu áður er kannski ekkert eins góð þegar hann vaknar.

Vaknar við syngjandi uglu klukkan sex á morgnana

Fyrir um tveimur mánuðum breyttist morgunrútína Þóreyjar Einarsdóttur, aðstoðarframkvæmdastjóra Vísindagarða HÍ, all hressilega því þá lærði yngsta dóttirin á klukku og finnst tilvalið að stilla hana á hringingu klukkan sex á morgnana.

Merkilegur andskoti hvað klukkan verður fljótt fimm

Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson sviðstjóri tónlistarsviðs Menningarfélags Akureyrar, framkvæmdastjóri Sinfonia Nord/Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, tónskáld og gítarleikari leggur mikinn metnað í matargerð svo ekki sé meira sagt. Þar dugir ekkert minna en tveggja til þriggja tíma matargerð, allt gert frá grunni.

Finnst gott að brjóta saman sokka eftir erfiðan dag

Ásgeir Kolbeinsson, framkvæmdastjóri, markaðsstjóri, mannauðsstjóri, stjórnarformaður, hugmyndasmiður, dagskrárgerðarmaður, fjárfestir og þáttastjórnandi segir líklega einfaldast að súmmera öll stöðugildin sín í orðið athafnamaður. Þótt honum finnist það svo sem ekki spennandi nafngift. Ásgeir er með mörg járn í eldinum, meðal annars spennandi podcast þátt með fleira fólki, sem hann segir fara í loftið fljótlega.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×