Lífið

Maí­spá Siggu Kling: Allt sem fiskurinn þarf er ást

Sigga Kling skrifar

Elsku Fiskurinn minn, það eru bjartir tímar framundan hjá þér. Það er hægt að segja það að þú sért með góð spil á hendi og þú átt eftir að koma fólki á óvart hvernig þú getur snúið þig út úr öllum aðstæðum sem gefa þér kvíða og stress. Þú veist það líka að þegar þú hugsar að allt verði betra, þegar ég er búinn að klára einhverja sérstaka erfiðleika sem ég hef miklar áhyggjur af. En lífið er bara þannig að þegar að einar áhyggjur hverfa þá kemur bara eitthvað annað til þess að „díla við“.

  • Fiskarnir eru frá 19. febrúar til 20. mars.

Eftir því sem þú tekur lífinu léttara og safnar ekki þessum áhyggjum í bakpokann þinn, þá kemur þetta andlega frelsi sem þú elskar. Það eina sem þú þarft að hafa töluvert á hreinu er að vera að vinna eða að fylla tíma þinn af athyglisverðum eða skemmtilegum áhugamálum sem þú þarft reyndar að finna út sjálfur hver eru. Þegar þú dettur ofan í eitthvað sérstakt og þú finnur að þú hættir að hugsa um það sem er að tefja þig, þá byrjar lífið að leysa þau mál sem þú heldur að þú einn getir leyst.

Tilfinninga- og ástartalan sex er tengd yfir í þetta tímabil, svo orð John Lennon eru send þér hér: „Allt sem þú þarft er ást“. Svo gefðu eins mikið af ást frá þér og sérstaklega til þeirra sem eiga það ekki endilega skilið. Þá finnurðu þennan frið og eldinn í sálinni sem er svo dásamlegt.

Þú þarft að fylgjast betur með hvort að þú sért að láta ofan í þig eitthvað sem hentar þér alls ekki, og ofnotkun á einhverju sem breytir huga þínum getur orðið þér að einhverskonar falli. Þetta gæti átt við um svo einfalda hluti eins og orkudrykki, kaffi eða einfaldlega eitthvað sem breytir orkunni þinni. Þetta er nefnilega tími sjálfsræktunar og sjálfseflingar og þú munt sjá nýjar leiðir á hverjum degi, svo opnaðu bara  augun fyrir því, elskan mín.

Knús og kossar, Sigga Kling

  • Jon Bon Jovi, söngvari 2. mars
  • Rebel Wilson, leikkona 2. mars
  • James Arthur, söngvari 2.mars
  • Daniel Craig, leikkari, 2. mars
  • Jessica Biel, leikkona, 3. mars
  • Ronan Keating, söngvari, 3.mars
  • Robert Kardashian, raunveruleikaþáttastjarna, 17. mars
  • Adam Levine, söngvari, 18.mars
  • Queen Latifah, söngkona, 18. mars
  • Vanessa Williams, leikkona, 18. mars
  • Grover Cleveland, fyrrum forseti Bandaríkjanna, 18. mars





Fleiri fréttir

Sjá meira


×