Lífið

Svona færðu full­komnar krullur án þess að nota hita á hárið

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Þessar fullkomnu krullur voru galdraðar fram án þess að nota hita.
Þessar fullkomnu krullur voru galdraðar fram án þess að nota hita. skjáskot

Hárgreiðsla getur gengt mikilvægu hlutverki þegar kemur að heildarútlitinu. Fallegar krullur eða vel blásið hár geta til dæmis lyft hversdagslegu lúkki upp á nýjar hæðir. Á sama tíma og við viljum vera með fallegt og vel stíliserað hár eru þó margir sem forðast það að nota of mikinn hita á hárið. 

Regluleg og mikil hitanotkun getur haft skaðleg áhrif á hárið. Hitinn getur valdið því að hárið verður þurrt og getur jafnvel brotnað. Vinsældir hárgreiðslna sem ekki krefjast hita hafa því aukist gríðarlega síðustu ár.

Þó svo að hártískan fari vissulega í hringi eru fallegar krullur alltaf í tísku. Það eru eflaust margir sem halda að eina leiðin til þess að galdra fram krullur sé að nota krullujárn - en svo er aldeilis ekki.

Hér fyrir má sjá tvær leiðir til þess að ná fram fullkomnum krullum án þess að nota hita á hárið. Þá eru þetta einnig frábærar leiðir til þess að spara sér tíma á morgnanna.

Hver hefur ekki verið þarna? Það má spara sér heilmikinn tíma á morgnanna með því að vera búin að undirbúa hárið kvöldinu áður.Getty

Nýttu náttsloppinn

Náttsloppur ætti að vera til á flestum heimilum. Hægt er að nota mittisbandið af sloppnum til þess að búa til fallegar krullur. Ef það er ekki til náttsloppur á heimilinu má einnig nota nylon sokkabuxur eða silkitrefil.

Best er að hárið sé örlítið rakt. Hárinu er vafið utan um bandið líkt og má sjá í myndbandinu hér að neðan. Til þess að útkoman verði sem best er gott að gera þetta að kvöldi til og sofa með bandið í hárinu.

Næsta morgun er bandið tekið úr hárinu og hárið ætti að vera vel krullað. Hægt er að greiða úr krullunum með hárbursta til þess að ná fram mjúkum og flæðandi krullum. Einnig er hægt að hrista upp í hárinu og jafnvel túbera það örlítið fyrir villtari krullur.

Sokkarnir fá nýjan tilgang

TikTok-stjarnan Yesenia Hipolito hefur vakið mikla athygli fyrir aðferð þar sem hún notar sokka til þess að galdra fram hið fullkomna „blow-out“ eða blásturskrullur sem hafa verið það allra heitasta undanfarin misseri.

Hipolito notar sokka og nokkrar svamprúllur. Svamprúllurnar setur hún inn í sokkana. Hárinu vefur hún svo utan um sokkana líkt og sjá má í myndbandinu hér að neðan. Aðferðin hefur notið gríðarlegra vinsælda enda útkoman stórkostleg og tímasparnaðurinn mikill.

@yeshipolitoo Night to Morning Heatless overnight blowout my hair definitely already had a bend in it but you can see the difference before & after + the more you do it, the longer it ll hold + the more prominent it ll be! #overnightcurls #overnightblowout #blowouttutorial #heatlesscurls #heatlessblowout #heatlesshair #hairtok #leggingcurls #heatlesscurlstutorial #overnighthairstyles #blowout #hairblowouthacks #hairblowouttutorial #trianglemethodhair #overnightblowoutresults 1 Thing - Amerie

Vaknar eins og Hollywood-stjarna

Svamprúllur eru þó ekki nauðsynlegar, því það má einnig nota háa sokka og binda þá saman til þess að þeir haldist í hárinu, líkt og sjá má í myndbandinu hér að neðan. Best er að setja sokkana í rakt hár að kvöldi til og sofa með þá í hárinu. Sokkarnir eru svo fjarlægðir um morguninn og þá er gott að hrista upp í hárinu og jafnvel spreyja það með smá hárspreyi - og þú getur haldið eins og Hollywood-stjarna út í daginn.


Tengdar fréttir

Hár­greiðslu­maður Kim Kar­dashian og Jenni­fer Lopez upp­ljóstrar leyndar­málunum

Chris Appleton, hárgreiðslumaður margra af skærustu stjörnum Hollywood, hefur vakið talsverða athygli á samfélagsmiðlinum TikTok undanfarið. Þar miðlar hann kunnáttu sinni áfram og uppljóstrar mörgum af sínum best geymdu hárleyndarmálum svo hver sem er geti umbreytt sér í Hollywood-stjörnu eða að minnsta kosti galdrað fram Hollywood-hár.

Stutt­hærð Hail­ey Bieber setur tóninn fyrir hár­tísku ársins 2023

Stutt hár virðist ætla að vera það heitasta í hártískunni á nýju ári ef marka má erlend tískublöð og tískugyðjuna Hailey Bieber. Eins og við vitum verður allt sem frú Bieber gerir að tískubylgju en í vikunni frumsýndi hún nýja klippingu, svokallaða bob klippingu sem nær rétt niður fyrir kjálka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×