Viðskipti erlent

Musk skiptir Twitter-fuglinum út fyrir Doge-hundinn

Bjarki Sigurðsson skrifar
Merki Twitter er ekki lengur fuglinn Larry.
Merki Twitter er ekki lengur fuglinn Larry. Getty/Andreas Arnold

Elon Musk hefur skipt Twitter-fuglinum Larry út fyrir Doge-hundinn Kabosu. Hundurinn er ein frægasta skopmynd heims og stendur Musk nú í málaferlum vegna rafmyntar sem notast við sömu mynd af hundinum, Dogecoin. 

Twitter-fuglinn hefur verið í merki Twitter síðan árið 2010. Fuglinn ber nafnið Larry T Bird í höfuðið á körfuboltaleikmanninum Larry Bird sem spilaði allan sinn feril með Bolton Celtics í NBA-deildinni. Einn stofnenda Twitter, Biz Stone, er mikill aðdáandi Celtics.

Svona leit saga Twitter-merkisins út þar til í gærkvöldi.

Eftir þrettán ára samfylgd virðist Elon Musk, eigandi Twitter, ætla að aðskilja Twitter og Larry. Nú birtist „meme“-hundurinn Kabosu, oftast þekktur sem Doge-hundurinn, uppi í hægra horni miðilsins. 

Hundurinn varð heimsfrægur árið 2013 þegar mynd af honum vandræðalegum á svip fór eins og eldur um sinu á netinu. Á myndina voru skrifuð nokkur orð og myndin nefnd „doge“ sem er grínritháttur á enska orðinu fyrir hund, dog.

Upprunalega doge-myndin.

Musk segist hafa gert breytinguna vegna samskipta sem hann átti við annan notanda á Twitter fyrir ári síðan, áður en hann keypti miðilinn. Þar spurði hann hvort það þurfi ekki nýjan samfélagsmiðil og var honum svarað að hann ætti bara að kaupa Twitter. Já og breyta fuglinum yfir í Doge-hundinn. 

„Haha það væri geðveikt,“ svaraði Musk á sínum tíma og virðist nú hafa ákveðið að standa við loforð sitt. 

Musk er sem stendur í málaferlum vegna umdeildrar rafmyntar sem nefnd var í höfuðið á skopmyndinni af hundinum, Dogecoin. Er hann sakaður um að hafa keyrt virði myntarinnar upp um 36 þúsund prósent á tveimur árum áður en hann lét hana falla jafn hratt niður. Fjöldi fólks tapaði gífurlegum fjárhæðum vegna þessa. 

Reuters greinir frá því að Musk sé krafinn um 258 milljarða dollara vegna málsins, 35 þúsund milljarða íslenskra króna. Musk hefur krafist þess að málinu sé vísað frá. 

Merki Twitter var breytt í gærkvöldi og hefur síðan þá virði Dogecoin hækkað um rúmlega 26 prósent.

Nokkrir Íslendingar hafa rætt um nýja merkið á Twitter í dag, þar á meðal Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri. Kallar hann Musk fávita fyrir að hafa breytt merkinu. 





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×