Fótbolti

Segja að Messi hafi verið boðnir 33 milljarðar í árslaun

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lionel Messi á mjög góðar minningar frá Arabíuskaganum frá því að hann varð heimsmeistari í Katar í desember.
Lionel Messi á mjög góðar minningar frá Arabíuskaganum frá því að hann varð heimsmeistari í Katar í desember. Getty/Gustavo Pagano

Hvernig líst þér á að fá 2,7 milljarða í laun á mánuði? Það er upphæðin sem spænska stórblaðið Marca segir að sé í spilunum fyrir Lionel Messi.

Samkvæmt heimildum spænska blaðsins frá Madrid þá hefur lið í Sádí Arabíu boðið Lionel Messi 220 milljónir evra í árslaun fyrir að spila með liðinu.

220 milljónir evra eru meira en 33 milljarðar í íslenskum krónum.

Samningstilboðið er þó ekki bara fyrir framlag hans inn á fótboltavellinum heldur snýst þetta einnig um að geta notað ímynd hans.

Samningur Messi og Paris Saint-Germain rennur út í sumar og þessi 35 ára gamli Argentínumaður þarf ekki að hafa áhyggjur af skorti á tilboðum.

Paris Saint-Germain vill endursemja, Barcelona dreymir um að hann komi aftur og þá er vitað af miklum áhuga í Miami um að hann spili fyrir fótboltafélag David Beckham.

Cristiano Ronaldo stökk auðvitað á svona ofurtilboð í Sádí Arabíu um áramótin og það hefur gengið upp og niður.

Það héldu margir að einvígi Messi og Ronaldo væri úr sögunni en hver veit nema að það verði aftur að veruleika á Arabíuskaganum á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×