Innlent

Ágæt en fyrir­sjáan­leg niður­staða

Bjarki Sigurðsson og Fanndís Birna Logadóttir skrifa
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, stuttu eftir að niðurstaðan var kynnt í dag.
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, stuttu eftir að niðurstaðan var kynnt í dag. Vísir/Sigurjón

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir það vera ágætt að komin sé niðurstaða í kjaradeilu samtakanna við Eflingu. Hann segir deilan sanna það að verkföll borgi sig ekki. 

Miðlunartillagan sem settur sáttasemjari, Ástráður Haraldsson, lagði fram í deilu Eflingar og SA var samþykkt í vikunni. Greint var frá niðurstöðum atkvæðagreiðslunnar í dag en tillagan öðlast strax gildi kjarasamnings. 

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, segir í samtali við fréttastofu að hann hafi ekki vænt mikilla vendinga í málinu en þó hafi það verið ánægjulegt að fá þessa niðurstöðu í málið. Hún hafi þó verið fyrirsjáanleg. 

„Ég held að það sé ágætt að það sé komin niðurstaða í þetta mál. Miðlunartillaga er mjög lýsandi orð. Hér er verið að greiða atkvæði um tillögu frá ríkissáttasemjara. Þegar upp er staðið held ég að þetta sé ágætlega farsæl lausn. Ég hef hins vegar gert mjög alvarlegar athugasemdir við fulla afturvirkni sem er tryggð í þessari miðlunartillögu. Ég tel að það sé röng niðurstaða og lagði fast að ríkissáttasemjara að draga einhverja afturvirkni til baka til þess að senda þau skilaboð inn í framtíðina að verkföll borga sig ekki eins og sannaðist í þessu dæmi,“ segir Halldór Benjamín. 

Klippa: Ágætlega farsæl lausn

Hann segir að ef hann væri sjálfur meðlimur Eflingar myndi hann reyna að fá svör frá stéttarfélaginu hverju þeirra barátta skilaði í þessari deilu. 

„Miðlunartillagan er eins og hún er, það sem er mest um vert er það að krafist var Eflingarsamnings fyrir Eflingarfólk. Niðurstaðan er SGS-samningur fyrir SGS-félögin hringinn í kringum landið. Það er besta niðurstaðan og sú niðurstaða sem við væntum frá upphafi,“ segir Halldór Benjamín. 

Ástráður Haraldsson, settur ríkissáttasemjari í deilunni, segir í samtali við fréttastofu að hann muni ekki veita viðtöl vegna málsins heldur snúa sér strax að öðrum málum.

Fréttastofu hefur ekki tekist að ná tali af Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar, vegna niðurstöðunnar. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×