Samkvæmt frétt hjá SVFR er eitthvað laust í Langá, Haukadalsá, Sandá, Flekkudalsá, Gljúfurá, Miðá og silungsveiði í Flókadalsá í Fljótum en það líklegt að það verði slegist um Haukadalsá, Sandá og Gljúfurá en þær hafa oftar en ekki verið löngu uppseldar til félagsmanna. Umsóknir í Elliðaárnar hafa líklega aldrei verið fleiri til félagsmanna svo það verða líklega afar fáir ef einhverjir dagar í árnar sem möguleiki verður að bóka utan félags.
Það styttist síðan hratt í fyrsta veiðidag sumarsins en veiði hefst að venju 1. apríl og þá liggur straumurinn í vorveiðina og þá sækja veiðimenn í sjóbirting. Vötnin opna síðan eitt af öðrum og er vatnaveiði yfirleitt komin í góðan gang strax í byrjun maí.