Viðskipti erlent

„Besti kokkur í heimi“ missir ó­vænt eina Michelin-stjörnuna

Atli Ísleifsson skrifar
Kokkurinn Guy Savoy (fyrir miðju) með Emmanuel Macron Frakklandsforseta og Mauricio Macri (til hægri), fyrrverandi forseta Argentínu. Lengst til vinstri er  Juliana Awada, fyrrverandi forsetafrú Argentínu, og við hlið hennar Brigitte Macron, forsetafrú Frakklands. Myndin er tekin 2018.
Kokkurinn Guy Savoy (fyrir miðju) með Emmanuel Macron Frakklandsforseta og Mauricio Macri (til hægri), fyrrverandi forseta Argentínu. Lengst til vinstri er Juliana Awada, fyrrverandi forsetafrú Argentínu, og við hlið hennar Brigitte Macron, forsetafrú Frakklands. Myndin er tekin 2018. EPA

Veitingastaður franska meistarakokksins Guy Savoy hefur misst eina af Michelin-stjörnum sínum eftir að hafa skartað þremur slíkum í heil nítján ár.

Kokkurinn Savoy var í nóvember síðastliðinn valinn „besti kokkur í heimi“ sjötta árið í röð af La Liste.

Savoy er yfirkokkur og eigandi veitingastaðarins Guy Savoy sem er að finna við suðurbaka Signu, nærri brúnni Pont Neuf, í frönsku höfuðborginni.

Veitingastaðurinn hlaut þrjár Michelin-stjörnur árið 2002 og hefur haldið þeim í einhver nítján ár.

Greint var frá því í gær að veitingastaðurinn hefði nú misst eina stjörnuna og því „einungis“ fengið tvær stjörnur. Michelin-stjörnur eru almennt taldar vera mesta viðurkenning sem veitingastaðir geta fengið og er mest hægt að fá þrjár stjörnur.

Gwendal Poullennec, sem starfar hjá Michelin við úthlutunina, segir í samtali við AFP að um sé að ræða einstaka veitingastaði sem fái Michelin-stjörnur og að það sé mikil vinna og hugsun sem liggi að baki hverri úthlutun. Fulltrúar Michelin sæki staðina nokkrum sinnum yfir árið þar sem þeir taka út staðinn.

Ekki eru gefnar skýringar á því opinberlega hver ástæðan sé fyrir því að staðurinn hafi nú misst eina stjörnuna. Poullennec leggur áherslu á að Michelin notist ekki einungis við útsendara frá Frakklandi heldur einnig erlendis frá.

Frá veitingastað Guy Savoy í París.Guy Savoy

Þetta sé í fyrsta sinn frá árinu 2019 sem franskur veitingastaður fari úr þremur stjörnum í tvær.

Savoy sagðist í gærkvöldi hugsa til samstarfsfólks síns og að hann myndi ræða við þá í dag, að því er segir í De Standaard. „Við töpuðum leiknum í ár en ætlum okkur að vinna hann aftur að ári,“ sagði Savoy í yfirlýsingu eftir að ljóst var að staðurinn hefði misst eina stjörnuna.

Michelin-stjörnum var fyrst úthlutað til veitingastaða árið 1926.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×