Neytendur

Fá um 190 þúsund vegna al­tjóns á ferða­tösku af dýrari gerðinni

Atli Ísleifsson skrifar
Kvartandi sagði að áður en taskan, sem var af gerðinni RIMOWA, hafi verið innritun hafi ekkert séð á henni. Hún hafi verið eins og ný fyrir utan nokkra límmiða.
Kvartandi sagði að áður en taskan, sem var af gerðinni RIMOWA, hafi verið innritun hafi ekkert séð á henni. Hún hafi verið eins og ný fyrir utan nokkra límmiða. Vísir/Vilhelm/RIMOWA

Icelandair hefur verið gert að greiða viðskiptavinum tæpar 190 þúsund krónur vegna tjóns sem varð á innritaðri ferðatösku af dýrari gerðinni á meðan hún var í vörslu flugfélagsins.

Þetta kemur fram í ákvörðun Samgöngustofu sem hækkaði þar þá skaðabótaupphæð sem félagið hafði áður boðið viðskiptavinunum vegna tjónsins. Atvikið átti sér stað þegar viðskiptavinirnir flugu með vél Icelandair frá Chicago í Bandaríkjunum til Keflavíkur í lok maí síðastliðinn.

Í ákvörðuninni kemur fram að viðskiptavinirnir hafi fyllt út sérstaka tjónaskýrslu við komuna til landsins og síðar skilað inn greiðslukvittun fyrir ferðatöskunni til Samgöngustofu og upplýsingar um hvað taska af sömu gerð kostar í dag.

Taskan átti að endast mjög lengi

Icelandair gekkst við því að ferðataskan hafi eyðilagst í þeirra vörslu og bauð viðskiptavinunum tæpar 143 þúsund krónur. Við ákvörðun upphæðar hafði verið gert ráð fyrir verðrýrnun upp á 10 prósent frá kaupárinu, það er 2019.

Þetta sættu viðskiptavinirnir sig ekki við enda væri um að ræða tösku sem væri mjög dýr og sem ætti að endast til margra ára. Hafi hún verið keypt með það í huga að „þurfa aldrei að kaupa aðra tösku“.

Þau leituðu þá til Samgöngustofu þar sem ágreiningurinn varðaði þá fjárhæð skaðabóta sem Icelandair taldi sér skylt að greiða þeim vegna altjóns á umræddri ferðatösku.

„Svo sterk er þessi taska og ætti ekki að sjá á henni við eðlilega meðferð. Ekkert sá á þessari tösku og var hún eins og ný. Fyrir utan límmiða sem að maðurinn minn hefur sett á hana sem að eru þau lönd sem að hann hefur komið til og RIMOWA selur til að setja á þessar töskur fyrir þá sem að kjósa það.

Það þarf virkilega illa meðferð og kæruleysi starfsmanna til að geta skemmt tösku úr járni eins og gerðist hjá starfsmönnum á vegum Icelandair,“ sagði í umsögn kvartenda. 

Taskan hafði verið keypt í október 2019, þá á 1.360 Bandaríkjadali, sem þá var 186 þúsund íslenskra króna.

Frá alþjóðaflugvellinum í Chicago, þaðan sem fólkið var að fljúga þegar taskan eyðilagðist.Getty

Fæst ekki hérlendis

Ennfremur var tekið fram að umrædd gerð af tösku fengist ekki hérlendis og myndi hún kosta 260 til 270 þúsund krónur til Íslands komin, með sköttum. Að miða við 10 prósenta afföll myndi þýða 20 þúsund krónur eða svo á ári í umræddu tilviki og það slíkt ekki sanngjarnt. Sömuleiðis væri nauðsynlegt að taka tillit til hækkun gengis íslensku krónunnar.

Icelandair svaraði því til að 10 prósenta reglan væri almenn, óháð gengisbreytingum, og vísaði félagið í eldri ákvörðun Samgöngustofu.

Kvartandi sagði þá að sér þætti ósættanlegt að þurfa að leggja sjálf út á bilinu 100 til 150 þúsund krónur til að kaupa nýja tösku. „Í dag kostar þessi taska 1.750 [Bandaríkjadali] sem samsvarar 252.000 [íslenskra króna] fyrir utan skatt og fyrir utan flutning hingað heim.“

10 prósenta reglan stendur

Í ákvörðun Samgöngustofu kemur fram að ekki sé gerð athugasemd við þær forsendur sem Icelandair leggi til grundvallar við útreikning á afföllum á ferðatöskunni. Þær séu í fullu samræmi við framkvæmd íslenskra vátryggingafélaga við útreikning á við útreikning á afföllum.

Samgöngustofa geri þó athugasemd við þá ákvörðun Icelandair að leggja til grundvallar ákvörðun á fjárhæð bóta vegna tjónsins, kaupverð ferðatöskunnar þann 10. október 2019.

Fram kemur að kvartendur hafi lagt fram upplýsingar sem sýndu fram á að söluverð ferðatösku af sömu gerð í dag, á heimasíðu framleiðandans, væri 1.750 Bandaríkjadalir að viðbættum söluskatti, það er samtals 1.903,13 dalir. Icelandair hafi þar tekið mið af skráðu gengi Bandaríkjadals gagnvart íslensku krónunni á þeim degi sem kvartendur festu kaup á ferðatöskunni.

Ljóst megi vera að þær skaðabætur sem Icelandair hafi boðið bæti ekki að fullu tjón kvartenda og að leggja skuli til grundvallar gengið á tjónsdeginum.

Samkvæmt útreikningum Samgöngustofu, þar sem miðað er við tíu present afföll á ári og gengi á tjónsdegi, var tjónsupphæðin metin 188.329 krónur sem Icelandair var gert að greiða viðskiptavinunum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×