Sport

„Stemmningin var engu lík og þetta var úrslitaleikur sem við þrífumst á“

Andri Már Eggertsson skrifar
Finnur Ingi skoraði 5 mörk í leik kvöldsins
Finnur Ingi skoraði 5 mörk í leik kvöldsins Vísir/Hulda Margrét

Valur vann sex marka sigur á Benidorm 35-29. Með sigrinum tók Valur ansi stórt skref í átt að sextán liða úrslitum. Finnur Ingi Stefánsson, leikmaður Vals, fimm mörk í kvöld og var ánægður með sigurinn.

„Þetta var geggjað. Það er ekki hægt að lýsa þessu kvöldi betur. Stemmningin var engu lík og þetta var úrslitaleikur og við þrífumst á því. Að geta komið í febrúar og spilað svona leik er geggjað,“ sagði Finnur Ingi Stefánsson í viðtali eftir leik.

Valur byrjaði leikinn illa og skoraði fjögur mörk á tæplega fimmtán mínútum sem var staða sem þetta lið hefur nánast aldrei lent í.

„Við vorum ekki nógu beittir til að byrja með. Þeir eru mjög óhefðbundnir og maður þarf tíma til að skilja þeirra leik og sem betur fer náðum við því og þegar við spiluðum betri vörn fengum við mörk í autt markið.“

 

Finnur var ánægður með hvernig Valur spilaði þegar Benidorm var einum fleiri í sókn sem skilaði auðveldum mörkum.

„Við vorum að spila mismunandi varnir. Við fórum að setja þá undir pressu og óþægilega stöðu og við létum þá taka ákvarðanir sem þeir vildu ekki taka. Í seinni hálfleik datt þetta alveg niður hjá þeim og við refsuðum.“

„Varnarleikurinn var góður. Þegar maður spilar vörn gegn 7 á 6 þá þarf maður að sýna brjálaða vinnusemi. Fara út úr hindrunum aftur og aftur. Ásamt því að vera dekka rétt svæði og við gerðum þetta ógeðslega vel,“ sagði Finnur Ingi Stefánsson að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×