Körfubolti

LeBron James setti upp ímyndaða kórónu á stóra skjánum á Super Bowl

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lebron James fylgist með Super Bowl leik Kansas City Chiefs og Philadelphia Eagles í nótt.
Lebron James fylgist með Super Bowl leik Kansas City Chiefs og Philadelphia Eagles í nótt. Getty/Ezra Shaw

Stigahæsti leikmaður NBA-deildarinnar frá upphafi var mættur á Super Bowl leikinn í Glendale í Arizona fylki í nótt.

James hefur ekkert spilað með Los Angeles Lakers síðan hann bætti stigamet Kareem Abdul-Jabbar í síðustu viku.

LeBron James kom hins vegar á leikinn um Ofurskálinu í nótt og var þar með konu sinni Savannah í einni af lúxussvítu leikvangsins.

Kansas City Chiefs tryggði sér þar NFL-titilinn með 38-35 sigri á Philadelphia Eagles.

Þegar LeBron kom upp á stóra skjánum á leikvanginum þá setti hann upp ímyndaða kórónu og fékk misgóð viðbrögð við því látbragði sínu.

Hér fyrir neðan má sjá LeBron James á stóra skjánum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×