Heilsa

Hreyfum okkur saman - Ketilbjölluæfing

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Anna Eiríks hefur starfað sem þjálfari í átján ár.
Anna Eiríks hefur starfað sem þjálfari í átján ár. Hreyfum okkur saman

Í sjötta þætti sýnir Anna Eiríks frábærar styrktaræfingar fyrir allan líkamann þar sem við notum ketilbjöllu.

Hver æfing er unnin í 20 sekúndur, pása 10 í tíu sekúndur. Tvö sett. Það eina sem þú þarft er dýna og ketilbjalla eða þungt handlóð.

Líkt og alltaf er æfingin í kringum fimmtán mínútur en þeir sem vilja meiri áskorun geta gert æfinguna oftar en einu sinni.

Klippa: Hreyfum okkur saman - Ketilbjölluæfing

Hreyfum okkur saman eru stuttir og fjölbreyttir æfingaþættir fyrir alla sem hafa heilsu til. Anna Eiríksdóttir leiðir þættina með frábærum æfingum og er markmiðið að fá sem flesta til að huga að heilsunni og hreyfa sig smá á hverjum degi.

Anna Eiríks skrifar pistla um mat og heilsu á Lífinu á Vísi.Íris Dögg Einarsdóttir

Þættirnir Hreyfum okkur saman eru sýndir hér á Lífinu á Vísi og Stöð 2+. Næstu vikurnar munu koma út tveir þættir á viku en eldri þætti má finna HÉR.

Anna Eiríks er stofnandi annaeiriks.is og er með Instagram síðuna instagram.com/aeiriks.


Tengdar fréttir

Hreyfum okkur saman: Rass- og læraæfingar

Í fimmta þætti af Hreyfum okkur saman sýnir Anna Eiríks frábærar styrkjandi æfingar fyrir rass og lærvöðva þar sem notaður er stóll til að styðja sig við.

Hreyfum okkur saman: Sterkur kjarni

Í þriðja þættinum af þessari þáttaröð af Hreyfum okkur saman sýnir Anna Eiríks frábærar æfingar fyrir kjarnavöðva líkamans.

Hreyfum okkur saman: Skemmtileg styrktaræfing

Í fyrsta þættinum af nýrri þáttaröð af Hreyfum okkur saman sýnir Anna Eiríks fjölbreytar styrktaræfingar. Í æfingunni notar Anna diska sem renna en einnig er hægt að nota lítil handklæði eða tuskur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×