Erlent

Ísbirnir drepast í massavís við Hudsonflóa

Samúel Karl Ólason skrifar
Ísbjörn við Hudsonflóa í Kanada. Þeim hefur fækkað mjög þar á undanförnum árum.
Ísbjörn við Hudsonflóa í Kanada. Þeim hefur fækkað mjög þar á undanförnum árum. AP/Sean Kilpatrick

Ísbirnir við Hudsonflóa í Kanada eru að deyja í massavís. Ástandið er sérstaklega slæmt hjá birnum og húnum en fækkun ísbjarna á svæðinu hefur valdið miklum áhyggjum meðal vísindamanna.

Samkvæmt talningu sem framkvæmd var í fyrra voru 618 ísbirnir við flóann. Árið 2016 voru þeir 842. Frá níunda áratug síðustu aldar hefur ísbjörnum fækkað um helming en fækkunin er að miklu leyti rakin til undanhalds hafíss.

Vísindamaður sem rannsakað hefur ísbirni á svæðinu í tæpa fjóra áratugi sagði í samtali við AP fréttaveituna að fækkunin væri mun umfangsmeiri en búist var við.

Ísbirnir nota ísinn til að veiða seli og önnur dýr þar sem þeir bíða við göt á ísbreiðunni eftir því að selir koma upp til að anda. Undanfarin ár hafa veðurfarsbreytingar af mannavöldum leitt til þess að ísinn frýs seinna á árinu og leysist upp fyrr og því hafa ísbirnir minni aðgang að fæðu.

Selir eru gífurleg mikilvægir ísbjörnum því þeir fá svo mikla orku úr fitu þeirra.

Einn leiðtoga talningarinnar segir að lengi hafi verið búist við því að breytingarnar myndu hafa mest áhrif á birnur og húna. Hratt stækkandi húnar þurfa mikla orku og birnur verja stórum hluta orkuforða þeirra í húnana.

Þessi þróun er talin ógna tilvist ísbjarna á svæðinu þar sem ungir ísbirnir deyja í massavís.

Leita meira í byggð

Í nýlegri frétt BBC var fjallað um bæinn Churchill í Manitoba, sem liggur við Hudsonflóa, en honum er iðulega lýst sem ísbjarnahöfuðborg heimsins. Íbúar þar eru með sérstakar ruslafötur sem ísbirnir komast ekki í og bílar eru yfirleitt ólæstir svo fólk á göngu geti auðveldlega leitað sér skjóls rambi það á ísbjörn í bænum.

Samhliða minni aðgengi ísbjarna að fæðu út á flóanum hafa fleiri ísbirnir leitað til byggða að fæðu.

Í þeirri frétt kom fram að vísindamenn búast við því að miðað við núverandi þróun verði hafísinn orðinn svo lítill árið 2050 að ísbirnir muni hverfa frá Hudsonflóa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×