Jól

Jóla­daga­tal Vísis: Bríet léttir lundina með prumpu­lyktar­lagi

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Bríet er svo góð söngkona að hún lætur lag um prumpulykt hljóma eins og hátíðarsálm.
Bríet er svo góð söngkona að hún lætur lag um prumpulykt hljóma eins og hátíðarsálm. Stöð 2

Eftir þunga daga undanfarið teljum við þörf á því að létta lund landans. Lag dagsins í Jóladagatali Vísis er líklega ekki það jólalegasta né hátíðlegasta, en það gleður. Það ætti í það minnsta að gleðja alla í kringum fimm ára aldurinn og vonandi fleiri.

Um er að ræða upptöku úr þættinum Stóra Sviðið frá því í fyrra. Bríet og Aron Can voru gestir Audda og Steinda í þættinum undir stjórn Steinunnar Ólínu. Eitt verkefna liðanna var að semja nýja texta við lög gestanna. Eðli þáttarins samkvæmt voru þeir í gamansamari kantinum.

Þeir Steindi og Aron Can sóttu innblástur til Prumpulagsins eftir Dr. Gunna og sömdu nýjan texta við Esjuna, eitt frægasta lag Bríetar.

Eins og sjá má tók Bríet verkefninu alvarlega og flutti lagið af mikilli alúð.








×