Samstarf

Fullkominn gljái á hamborgarhrygginn

Ali
Gotterí og gersemar

Íslendingar halda fast í hefðirnar á jólum og sá réttur sem ratar hvað oftast á jólaborðið er saltað og reykt grísakjöt, hamborgarhryggurinn sjálfur. Sögu hamborgarhryggsins má rekja til Þýskalands en Íslendingar komust þó á bragðið frá Danmörku. Ali hamborgarhryggur hefur verið hluti af íslenskri hátíðarhefð í yfir 75 ár og ein sá vinsælasti á markaðinum.

Það er einfalt að matreiða safaríkan og bragðgóðan Ali hamborgarhrygg. Vandað er til verka þegar hann er léttreyktur yfir beykispæni og saltmagnið hefur minnkað í gegnum tíðina. 

Áður fyrr var venjan að sjóða alltaf hamborgarhrygginn áður en hann fór inn í ofn en í dag þarf ekki að sjóða Ali hamborgarhrygginn. Flestir velja núna að setja hamborgarhrygginn í vatnsbað í ofnpotti eða koma honum fyrir á grind yfir ofnskúffu með vatni til að fá safaríka og gómsæta útkomu. Þeir allra vanaföstustu velja engu að síðu að sjóða hrygginn áður en hann fer í ofninn. Það er mikið í húfi þegar verið er að elda jólamatinn.

Hér er frábær uppskrift Berglindar Hreiðars í Gotterí og gersemar að Ali hamborgarhrygg með appelsínu- og möndlugljáa sem spennandi er að prófa um jólin.

Klippa: Hamborgarhryggur með appelsínu- og möndlugljáa

Hér má einnig nálgast skotheldar uppskriftir að hamborgarhrygg og sígildu meðlæti






Fleiri fréttir

Sjá meira


×