Innherji

„Góðar líkur“ á að samningurinn skili launafólki auknum kaupmætti

Hörður Ægisson skrifar
Aðalsteinn S. Leifsson ríkisáttasemjari fær samninginn í hendurnar frá Halldóri Benjamín Þorbergssyni, framkvæmdastjóra SA. Hagfræðingur Íslandsbanka segir að samningarnir sem nú hafi verið undirritaðir séu „nokkurn veginn“ í takti við þær launaforsendur sem greiningardeild bankans hafi haft í sinni spágerð.
Aðalsteinn S. Leifsson ríkisáttasemjari fær samninginn í hendurnar frá Halldóri Benjamín Þorbergssyni, framkvæmdastjóra SA. Hagfræðingur Íslandsbanka segir að samningarnir sem nú hafi verið undirritaðir séu „nokkurn veginn“ í takti við þær launaforsendur sem greiningardeild bankans hafi haft í sinni spágerð. Vísir/Vilhelm

Verði sá kjarasamningur sem hefur verið undirritaður milli SA og VR, LÍV og samflots iðnaðarmanna staðfestur mun það „vafalítið“ verða mörgum léttir, bæði launafólki og atvinnurekendum, að fá meiri vissu um fjárráð og rekstrarkostnað næsta árið, að sögn hagfræðings. Samningurinn sé nálægt grunnspá Seðlabankans um launaþróunina og gangi verðbólguspár eftir er útlit fyrir að hann muni skila launafólki almennt nokkurri kaupmáttaraukningu á komandi ári.


Tengdar fréttir

Samningurinn felur í sér 6,75 prósent almenna launahækkun

Kjarasamningur Samtaka atvinnulífsins við VR, Landssamband íslenskra verslunarmanna og samflot tækni- og iðnaðarmanna felur í sér 6,75 prósent almenna launahækkun sem afturvirk er frá 1. nóvember síðastliðnum. Skrifað var undir samningana fyrir stundu.

Seðl­a­bank­a­stjór­i seg­ir að fyrst­u kjar­a­samn­ing­arn­ir séu „mjög já­kvæð tíð­ind­i“

Seðlabankastjóri sagði að fyrstu kjarasamningar sem gerðir voru í þessari lotu séu „mjög jákvæð tíðindi“ og auki fjármálastöðugleika. Hann sagði ennfremur bankarnir væru ekki lengur að fá „ódýra fjármögnun“ erlendis eftir áratug þar sem vextir voru neikvæðir í okkar helstu viðskiptalöndum.  „Bankarnir verða að varpa þessu áfram til íslenskra aðila,“ sagði Ásgeir.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×