Samstarf

Íslenska Tweedið stenst allan samanburð

Herrafataverzlun Kormáks & Skjaldar
Þróun á íslenska tweedinu tók mörg ár og stenst allan samanburð við þekkt erlend tweed vörumerki.
Þróun á íslenska tweedinu tók mörg ár og stenst allan samanburð við þekkt erlend tweed vörumerki.

„Kormákur & Skjöldur hefur í 26 ár snúist um mikið og djúpt úrval í herravörum og viljum við helst eiga allt sem spurt er um,“ segir Gunni Hilmarsson, aðalhönnuður Herrafataverzlunar Kormáks & Skjaldar.

Kormákur & Skjöldur er rótgróin herrafataverslun í verslunarflóru landsins og sannkallaður „herrahellir“, staðsett í kjallara á Laugavegi 59. Séntilmannlegt andrúmsloft tekur á móti gestum og eru tweedfatnaður og jarðlitir allsráðandi. Og þetta er enginn venjulegur tweedfatnaður, undanfarin ár hefur mikil þróunarvinna farið fram undir stjórn Gunna Hilmars.

Íslenska tweedefnið er mjúkt og klæðilegt og stenst erlendri framleiðslu fyllilega snúning.

„Við höfum undanfarin 11 ár sett mikla vinnu í okkar eigin línu og stækkun á henni sem og þróun á íslenska tweedinu. Þetta eru flaggskipin okkar. Þróun á íslenska tweedinu tók mörg ár og við erum afar stolt af útkomunni. Það stenst allan samanburð við þekkt erlend tweed vörumerki. 

Okkar er meira að segja heldur mýkra og sterkara ef eitthvað er,“ segir Gunni.

„Að sjálfsögðu framleiðum við jakka, vesti, buxur og yfirhafnir og svo mikið úrval af smávörum."

„Við fórum nokkrar leiðir til að prófa framleiðsluna og á endanum fundum réttu leiðina til að framleiða það. Við bjóðum upp á mikið úrval af tweed vörum og einnig seljum við það i metravís í mörgum litum og munstrum sem er vinsælt sem áklæði á húsgögn og þess háttar. Að sjálfsögðu framleiðum við jakka, vesti, buxur og yfirhafnir og svo mikið úrval af smávörum svo sem bindi, slaufur, sixpensara, tölvuhulstur, pennahulstur, inniskó, ipadhulstur, vasapela, hanska og fleira. Þessar vörur hafa slegið í gegn sem gjafavara og enda í mörgum jólapökkunum íslenskum herramönnum til gleði,“ segir Gunni sem potturinn og pannan á bak við línuna.

Lína Kormáks & Skjaldar er afar glæsileg.

„Ég hanna í samvinnu minni við piltana sem vinna hjá Kormáki & Skildi. Við vinnum með frábærum efna framleiðendum og einnig með verksmiðjum sem eru í fremstu röð til að tryggja góð gæði og endingu sem er stór hluti af sjálfbærni í fatnaði að hann endist vel og lengi. Línan er ansi djúp. Mikið úrval af skyrtum, jökkum, buxum, vestum, bolum, peysum, yfirhöfnum, sokkum, bindum, slaufum, höttum, nærfötum, axlaböndum og mikið úrval af smávörum. Allt íslensk hönnun sem stendur jafnfætis í gæðum svipaðra merkja erlendis. 

Auk þess eigum við gott úrval af okkar uppáhalds erlendu merkjum svo sem Barbour, Filson, Red Wing, Loake, Stetson og mörg fleiri heimsþekkt vörumerki,“ segir hann og á von á fjörugri jólaverslun.

Íslenska tweedið er meðal annars notað í bókakápur og selt í metratali sem áklæði á húsgögn.

„Verslunin er full af hentugum jólagjöfum og allt er svo mátulegt. Tweed vörurnar eru falleg gjöf, einnig er mikið úrval af skóm. Við höfum byggt þá deild mikið upp þetta árið og svo er auðvitað gjafir frá Barbour jólagjöf sem er ansi falleg. Frá Barbour er mikið úrval af gjafavöru og jakkarnir eru auðvitað klassík

Svo eigum við allt annað til, frá skóm upp í höfuðföt og allt þar á milli. Einnig fallegar gjafaöskjur sem innihalda t.d. hanska og trefil og auðvitað jólanáttfötin,“ segir Gunni.

Mjúkir inniskór eru tilvalin jólagjöf.

Herrafataverszlun Kormáks & Skjaldar er vefverslun vikunnar á Vísi.

Einvalalið stendur að Herrafataverzlun Kormáks & Skjaldar.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×