Viðskipti erlent

Milljarða­eignir FTX sagðar horfnar

Kjartan Kjartansson skrifar
FTX-höllin sem bandaríska körfuknattleiksliðið Miami Heat spilar í.
FTX-höllin sem bandaríska körfuknattleiksliðið Miami Heat spilar í. AP/Marta Lavandier

Verulegum hluta eigna fallna rafmyntarkauphallarinnar FTX var stolið eða er horfinn, að sögn lögmanna fyrirtækisins. Lögmaður fyrirtækisins heldur því fram að Sam Bankman-Fried, fyrrverandi forstjóri FTX, hafi rekið það eins og persónulegt lén sitt.

FTX óskaði eftir gjaldþrotameðferð fyrir tæpum tveimur vikum. Fótunum var kippt undan fyrirtækinu eftir að viðskiptavinir gerðu áhlaup og vildu taka út innistæður sínar vegna efasemda sem komu upp um rekstur þess. Bankman-Fried vék sem forstjóri en eftirmaður hans sagðist aldrei hafa séð slíka óstjórn og skort á fjárhagslegum upplýsingum á ferli sínum.

Lögmenn FTX drógu upp dökka mynd af stöðunni þegar gjaldþrot þess var tekið fyrir í alríkisdómstól í Delaware í gær, að sögn New York Times. Þeir sögðust hafa takmarkaðar upplýsingar um fjármál FTX vegna óstjórnar Bankman-Frieds. Fyrirtækið hefði orðið fyrir netárásum og eignir hefðu horfið. 

Vísuðu lögmennirnir til tölvuinnbrots daginn sem FTX óskaði eftir gjaldþrotameðferð en þá virðast hundruð milljóna dollara hafa verið færðar af reikningum hjá FTX annað. Fréttir hafa verið um að yfirvöld á Bahama kunni að hafa lagt hald á hluta fjármunanna en stærstur hlutinn virðist hafa verið færður á milli fjölda rafmyntarreikninga til þess að þvætta féð.

James Bromley, einn lögmannanna, sagði að Bankman-Fried hefði stofnað viðskiptaveldi sem hann rak eins og „persónulegt lén“ sitt. Nú stæði keisarinn hins vegar nakinn eftir.

„Þetta fyrirtæki var rekið af óreyndum, einföldum og mögulega persónulega spilltum einstaklingum. Þetta eitt skyndilegasta og erfiðasta hrun fyrirtækis í bandarískri viðskiptasögu,“ sagði Bromley, að sögn AP-fréttastofunnar.

Kröfuhafarnir njóta nafnleyndar um sinn

Áætlað er að um milljón kröfuhafa sé í bú FTX en það skuldar þeim fimmtíu stærstu í kringum 3,1 milljarð dollara, jafnvirði um 441 milljarðs íslenskra króna. Lýsingar lögmannanna í gær dregur úr líkum á að þeir hafi mikið upp úr krafsinu.

Ekki hefur verið greint frá því hverjir kröfuhafarnir eru þrátt fyrir að það séu yfirleitt opinberar upplýsingar við gjaldþrot. Lögmenn FTX fóru fram á og fengu því framgegnt að þeir nytu nafnleyndar enn um sinn, meðal annars til draga úr hættu á að stolið verði af reikningum þeirra hjá FTX. 

Bromley upplýsti í gær að tengt félag hefði keypt fasteignir á Bahamaeyjum, þar sem FTX var skráð, fyrir hátt í þrjú hundruð milljónir dollara, jafnvirði hátt í 43 milljarða íslenskra króna. Á meðal þeirra voru lúxusíbúðir og sumarleyfishús fyrir háttsetta stjórnendur FTX.


Tengdar fréttir

Stjórn­endur FTX sagðir hafa keypt lúxus­í­búðir fyrir milljarða

Rafmyntarfyrirtækið FTX, stofnandi þess, foreldrar hans og æðstu stjórnendur fyrirtækisins eru sagðir hafa keypt fjölda lúxusfasteigna á Bahamaeyjum fyrir jafnvirði milljarða króna á undanförnum tveimur árum. Fyrirtækið er nú í gjaldþrotameðferð í Bandaríkjunum og er til rannsóknar vegna meintra verðbréfasvika.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×