Atvinnulíf

„Það er galið að segja það en ég gæti mögulega drepist úr áhuga“

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Andrea Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA, finnst svo gaman í vinnunni að hún hreinlega teldi líkur á að hún gæti drepist úr áhuga. Andrea viðurkennir að vera ekki rösk fram úr á morgnana og eins að hún þurfi aðeins að hafa fyrir því að vera þakklát þá morgna sem skafa þarf af bílnum.
Andrea Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA, finnst svo gaman í vinnunni að hún hreinlega teldi líkur á að hún gæti drepist úr áhuga. Andrea viðurkennir að vera ekki rösk fram úr á morgnana og eins að hún þurfi aðeins að hafa fyrir því að vera þakklát þá morgna sem skafa þarf af bílnum.

Andrea Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA, viðurkennir að hún gæti verið röskari í að koma sér fram úr á morgnana. Andrea er í átaki að fara fyrr upp í rúm á kvöldin en einnig að hætta að segja að það sé „brjálað“ að gera en segja þess í stað að það sé „nóg“ að gera.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

Það er svigrúm til bætingar í að stökkva framúr þegar klukkan hringir fyrst á morgnana og ég fæ stundum að kúra aðeins lengur. Samt veit ég að dagurinn verður alltaf betri þegar ég vakna snemma með strákunum mínum.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Helli uppá kaffi ef ég er fyrst í eldhúsið, fæ mér vítamín, Lýsi og vatnsglas. Ég elska árstíðir en mér finnst skemmtilegra að vakna í sumarblíðu og vinn markvisst með þakklætið ef ég þarf að vaða skafla. Þá er almennt gott að búa á Íslandi en slabb sökkar og allt verður betra í góðri úlpu.“

Ef þú værir karakter í einni af eftirtalinni kvikmynd, hver værir þú þá: Forrest Gump, Bridget Jones, Neo í Matrix-myndunum?

„Ok, þú ert að tala við gelluna sem horfir nánast ekkert á sjónvarp, aldrei á streymisveitur en þetta eru myndir frá þeim tíma sem ég horfði mikið á VHS, sem er gott.

Fyrsta sem kemur upp í huga mér er Neo í Matrix-myndunum, að hann sé minn maður en hasarmyndir og vísindaskáldskapur getur drepið mig úr leiðindum. Er það ekki rétt munað að hann var efasemdagaur og fannst eitthvað bogið við þetta allt saman? Það er klassískt ég, hef aldrei vaxið uppúr að spyrja „Af hverju er þetta svona?“, „Af hverju ekki?“, „Af hverju…?“ Svo á ég líka jafn mikið af svörtum fötum og hann.“

Andrea hvetur alla til að fara inn á vefsíðu FKA og tilnefna konur í atvinnulífinu fyrir Viðukenningarhátíð FKA sem haldin verður á Grand Hóteli Reykjavík í janúar. Þá verða veitt þrenn verðlaun til kvenna sem hafa verið konum í atvinnulífinu hvatning og fyrirmynd. 



Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Í Félagi kvenna í atvinnulífinu, FKA er nóg að gera að vanda en svona stóru penslarnir eru undirbúningur fyrir Sýnileikadag í Arion banka sem verður í mars, Mentor verkefni FKA Framtíðar hefur aldrei verið stærra og er heldur betur á góðu flugi. 

Það er verið að telja í stefnumótun hjá félaginu og telja í árlegt Jólarölt enda jólin í desember í ár. Allt er þetta unnið með öflugum deildum, nefndum og félagskonum. 

Síðast en ekki síst er í undirbúningi Viðurkenningarhátíð FKA sem verður á Grand Hóteli Reykjavík í janúar. Að vanda verða veittar viðurkenningar á hátíðinni til þriggja kvenna sem hafa verið konum í atvinnulífinu hvatning og fyrirmynd. Ég hvet ykkur öll til að fara undir fréttir á heimasíðu FKA og tilnefna ólíkar konur af landinu öllu sem fyrst.  FKA kallar eftir tilnefningum frá almenningi og atvinnulífinu sem dómnefnd mun meta og á endanum velja konur sem hljóta FKA þakkarviðurkenningu, FKA viðurkenningu og FKA hvatningarviðurkenningu.“



Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

Ég þarf að beita mig hörðu til að hætta og standa upp frá verkefnum tengdum vinnunni.  

Það er galið að segja það en ég gæti mögulega drepist úr áhuga og þarf að skipuleggja hreyfingu, að hitta stelpurnar og sýna ábyrgt kæruleysi.

Þetta er Outlook, gulir miðar og svo öpp eins og Sportabler til að massa þriðju vaktina á kantinum. Ég er komin með grænar bólur af því að segja „brjálað að gera“ sem það sannarlega er oft en er að vinna með að segja frekar „nóg að gera“ sem mér finnst eiga betur við ef þér líður vel.

En sem fyrr eru engin KvikkFix eða hjáleið að góðum árangri en jafnvægið er mikilvægt til að lenda ekki í skuld við framtíðina.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Ég fer yfirleitt að sofa um og eftir miðnætti en það gæti breyst því ég fékk hjá vinkonu minni nálastungudýnu sem ég sem á að bæta orkustigið, draga úr vöðvaspennu og bæta gæði svefnsins. Ég er komin með algjört æði fyrir þessari dýnu og stefni á að fara fyrr uppí.“


Tengdar fréttir

Væri líklegast uppátækjasamur starfsmaður á plani í Næturvaktinni

Stefanía Guðrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Eyri Venture Management, er í því átaki núna að lesa meira á kvöldin en leggja símann frá sér. Ef hún væri karakter í Næturvaktinni telur hún líklegt að hún væri uppátækjasamur starfsmaður á plani.

Hafnar því alfarið að vakna snemma vegna gráu háranna

Björn Ingi Hrafnsson blaðamaður hafnar því alfarið að það hafi eitthvað með gráu hárin eða aldurinn að gera, hversu snemma hann vaknar á morgnana. Þó í átaki að reyna að sofna fyrr á kvöldin enda B-týpa að eðlisfari.

Missir sig þegar kemur að lakkrís og öllu með lakkrísbragði

A manneskjan Anna Katrín Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Alfreðs, segir það stundum reyna á samningatæknina að vera með unglinga á heimilinu þegar allir vilja fara í sturtu á morgnana. Anna viðurkennir að hreinlega elska lakkrís og allt sem honum tengist.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×