Atvinnulíf

Hafnar því alfarið að vakna snemma vegna gráu háranna

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Björn Ingi Hrafnsson með Uglu og Rakel. Bolabíturinn er Ugla. Björn Ingi viðurkennir að sakna reglulegra funda með þríeykinu. Enda þríeykið eðalfólk. En er feginn því að heimsfaraldurinn í sinni alvarlegustu mynd er yfirstaðinn.
Björn Ingi Hrafnsson með Uglu og Rakel. Bolabíturinn er Ugla. Björn Ingi viðurkennir að sakna reglulegra funda með þríeykinu. Enda þríeykið eðalfólk. En er feginn því að heimsfaraldurinn í sinni alvarlegustu mynd er yfirstaðinn. Vísir/Vilhelm

Björn Ingi Hrafnsson blaðamaður hafnar því alfarið að það hafi eitthvað með gráu hárin eða aldurinn að gera, hversu snemma hann vaknar á morgnana. Þó í átaki að reyna að sofna fyrr á kvöldin enda B-týpa að eðlisfari.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

Ég vakna satt að segja oftast fyrir allar aldir og er kannski byrjaður að drekka minn kaffibolla og skrifa eitthvað í tölvuna fyrir klukkan ex á morgnana. 

Mér virðist lífsins ómögulegt orðið að sofa út og hafna því alfarið að það hafi eitthvað með gráu hárin og aldurinn að gera.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Fyrsti kaffibollinn er ákaflega heilög stund. Setja á rólega tónlist og koma deginum af stað. Gott að eiga notalega stund með sjálfum sér áður en börn eru vakin og kapphlaupið um að komast úr húsi hefst.“

Saknar þú þess að hitta þríeykið reglulega á fundum eins og um tíma var?

„Auðvitað var gaman og gagnlegt að vera í reglulegum samskiptum við þetta eðalfólk, en ég sakna þess ekki þegar faraldurinn stóð sem hæst og samfélagið var nánast stopp um langa hríð. 

Þetta var samt afar lærdómsríkur tími fyrir okkur öll og kenndi okkur að meta hversdagslega hluti sem við töldum áður sjálfsagða.“

Eins og margir í kjölfar Covid segist Björn Ingi nýta sér kosti fjarvinnunnar enda þarf hann ekkert fyrir sína vinnu nema gömlu tölvuna og síma. Þessa dagana er Björn Ingi að skrifa bók og handrit.Vísir/Vilhelm

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Ég er í bókaskrifum og að vinna að handriti ásamt ýmsum tilfallandi verkefnum sem koma upp. Það er einhvern veginn alltaf nóg að gera og fjalla um.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

Margir uppgötvuðu kosti fjarvinnu í faraldrinum, en ég er einn þeirra sem get unnið hvar sem er og þarf bara mína gömlu fartölvu og síma. 

En þá er lykilatriði að sitja yfir verkefnum sínum ákveðið lengi í einu og eyða ekki dýrmætum tíma í eitthvað gagnslaust sjónvarps- eða netráp. 

Það þarf að beita sig aga og halda sér að verki.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Í seinni tíð reyni ég að sofna ekki löngu eftir miðnætti, en ég er líklega B-týpa að eðlisfari og get alveg vakað allt of lengi yfir góðri bók eða einhverju viðfangsefni og hreinlega gleymt mér.

Þess vegna skulda ég sjálfum mér oft talsverðan svefn og hef undanfarið reynt að koma betra lagi á þau mál.

Það skiptir víst máli, er mér sagt.“


Tengdar fréttir

Missir sig þegar kemur að lakkrís og öllu með lakkrísbragði

A manneskjan Anna Katrín Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Alfreðs, segir það stundum reyna á samningatæknina að vera með unglinga á heimilinu þegar allir vilja fara í sturtu á morgnana. Anna viðurkennir að hreinlega elska lakkrís og allt sem honum tengist.

Hlakkar til á kvöldin að drekka kaffið í góðu skapi á morgnana

Morgunhaninn Sigríður Dögg Auðunsdóttir fréttamaður á RÚV og formaður Blaðamannafélags Íslands, viðurkennir að hafa forðast ljósvakamiðla í mörg ár af ótta við að mistakast í beinni útsendingu. Öryggið kom þó á endanum en að fara í sjónvarp var áskorun.

Kynntist konunni dansandi við lagið „Killing in the Name“

Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari segir að í einhverjum brjálæðislegum draumi sæi hann frekar fyrir sér að vera rokkari en poppari. Aðalsteinn segist vakna seint og syfjaður enda fari hann of seint að sofa. Í skipulagi reynir hann að afgreiða flóknari mál á morgnana.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×