Viðskipti erlent

Starfsmenn flýja Twitter vegna afarkosta Musk

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Musk keypti Twitter á þúsundir milljarða og tók sjálfur við stjórnartaumunum. Síðan þá hefur hann ekki gert annað en að vinna skemmdarverk á fjárfestingu sinni.
Musk keypti Twitter á þúsundir milljarða og tók sjálfur við stjórnartaumunum. Síðan þá hefur hann ekki gert annað en að vinna skemmdarverk á fjárfestingu sinni. Getty/Taylor Hill

Það er óhætt að setja að framtíð samfélagsmiðilsins Twitter sé í uppnámi eftir að hundruðir starfsmanna virtust velja að kveðja fyrirtækið í stað þess að gangast undir afarkost Elon Musk um að starfsmenn skuldbittu sig til að vinna langa og stranga vinnudaga ellegar hættu.

Erlendir miðlar segja að meðal þeirra sem völdu frekar að ganga á braut séu margir tæknimanna fyrirtækisins, sem hafi hingað til séð til þess að halda samfélagsmiðlinum gangandi. Yfirmenn eru sagðir velta því fyrir sér að biðla til starfsmanna um að snúa aftur.

Skrifstofum fyrirtækisins hefur verið lokað tímabundið í kjölfar uppnámsins en áður hafði athafnamaðurinn og frumkvöðullinn Musk, nýr eigandi fyrirtækisins, dregið í land með strangar kröfur sínar um viðveru og sagt að menn gætu unnið í fjarvinnu ef þeir skiluðu framúrskarandi verki.

Nú hafa hins vegar allir aðgangspassar starfsmanna Twitter verið gerðir óvirkir og í netheimum velta menn því fyrir sér hvort samfélagsmiðillinn verði einfaldlega óstarfhæfur og tekinn niður, að minnsta kosti tímabundið.

„Ef eitthvað kemur upp á, er enginn til staðar til að laga það,“ hafa miðlar eftir einum heimildarmanni.

Nú þegar hafa þekktir einstaklingar og stjórnvöld bent fólki á aðrar leiðir til að nálgast upplýsingar en á Twitter. Musk virðist hins vegar hóflega áhyggjufullur, ef marka má tíst hans síðasta sólahring.

Í könnun sem gerð var meðal starfsmanna töldu flestir að um helmingur myndi yfirgefa fyrirtækið í kjölfar yfirtöku og yfirlýsinga Musk. Ákvörðun hans að reka stóran hluta starfsfólksins í gegnum tölvupóst og krefjast ómanneskjulegs vinnuframlags af þeim sem eftir eru hefur farið illa í fólk.

Þá er mikil óvissa uppi um hvaða stefnu Musk mun taka þegar kemur að eftirliti með efni á miðlinum, til að mynda hatursáróðri og falsupplýsingum.

Fjöldi starfsmanna hefur tíst kveðjum á síðustu klukkustundum, þeirra á meðal Haraldur Þorleifsson, kenndur við Ueno. Hann varð starfsmaður Twitter þegar miðillinn eignaðist Ueno. 

Það liggur þó ekki fyrir hvort hann er sjálfur að kveðja fyrirtækið eða hvort hann er að kveðja þá félaga sem hafa valið að snúa sér að öðru.


Tengdar fréttir

Lengri vinnudagar hjá „harðara“ Twitter 2,0

Auðjöfurinn Elon Musk hefur gefið þeim starfsmönnum Twitter sem enn vinna hjá samfélagsmiðlafyrirtækinu frest út daginn á morgun til að sverja þess heit að skuldbinda sig til að vinna lengri vinnudaga hjá „harðara“ Twitter. Geri þau það ekki verði þeim sagt upp.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×