Viðskipti innlent

Sameina krafta sína vegna ÍL-sjóðs

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Davíð Rúdólfsson, forstöðumaður eignastýringar hjá Gildi - lífeyrissjóði, svarar fyrir samvinnu lífeyrissjóðanna.
Davíð Rúdólfsson, forstöðumaður eignastýringar hjá Gildi - lífeyrissjóði, svarar fyrir samvinnu lífeyrissjóðanna.

Flestir lífeyrissjóðir landsins hafa, í ljósi mikilla hagsmuna íslenskra sjóðfélaga, myndað sameiginlegan vettvang vegna þeirrar stöðu sem upp er komin vegna ÍL-sjóðs. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur lýst því yfir að ríkið hafi ákveðið að grípa til aðgerða vegna stöðu sjóðsins, en stærstu eigendur skuldabréfa útgefnum af sjóðnum eru lífeyrissjóðir. Telja forsvarsmenn sjóðanna rétt að vinna saman í greiningu á stöðu sjóðanna vegna þessa. Hver og einn sjóður muni þó að endingu taka sjálfstæða ákvörðun um málið.

Þetta kom fram á fjölmennum upplýsingafundi sem flestir lífeyrissjóðir landsins mættu til í dag. 

„Eins og fram hefur komið hefur fjármálaráðherra lýst yfir að ríkið ætli að grípa til aðgerða vegna stöðu sjóðsins og að þrír kostir væru fyrir hendi. Í fyrsta lagi að halda áfram að leggja ÍL-sjóðnum til fjármuni, sem fjármálaráðherra telur ekki koma til greina. Í öðru lagi að knýja sjóðinn í gjaldþrot með sérstakri lagasetningu, til að losna undan ríkisábyrgð. Í þriðja lagi að ná samkomulagi við skuldabréfaeigendur, sem að stærstum hluta eru lífeyrissjóðir, um uppgjör,“ segir í tilkynningunni.

Þar segir að á fundinum í dag hafi komið fram að einhugur væri um samstarf vegna greiningu stöðunnar vegna þessa máls, enda gríðarlegir hagsmunir í húfi fyrir íslenska sjóðfélaga. 

„Þegar hefur verið gengið frá ráðningu lögfræðistofunnar Logos sem lögfræðilegs ráðgjafa lífeyrissjóðanna, unnið er að því að greina lögfræðileg álitamál, hagsmuni sjóðanna – og þar með almennings í landinu – og frekari framgangi málsins. Þá hafa fjárhagslegir ráðgjafar jafnframt verið ráðnir.“

Davíð Rúdólfsson, forstöðumaður eignastýringar hjá Gildi - lífeyrissjóði, svarar fyrir samvinnu lífeyrissjóðanna.


Tengdar fréttir

Ríkið væri ekki að „efna fyllilega loforð“ um ábyrgð með því að slíta ÍL-sjóði

Ein ástæða þess að stjórnvöld hafa nú boðað aðgerðir til að leysa upp ÍL-sjóð er að hann stenst ekki skilyrði um að vera sjálfstæð stofnun, samkvæmt Evrópsku hagstofunni, en við það færast skuldbindingar sjóðsins undir ríkisreikning frá og með 2022 sem gæti aukið skuldir ríkissjóðs um 650 milljarða, að mati dósents í fjármálum. Hann telur farsællegast að ná samkomulagi við kröfuhafa um uppgjör ÍL-sjóðs en verði farin sú leið að slíta sjóðnum með sérstakri lagasetningu, sem hann efast um að fjármálaráðherra vilji í raun gera, þá væri ríkið ekki að „efna fyllilega loforð“ um ábyrgð á skuldum hans.

Birta gæti þurft að taka á sig sex milljarða högg við virðislækkun íbúðabréfa

Birta gæti orðið fyrir um sex milljarða króna tapi að núvirði ef lífeyrissjóðurinn þarf að færa niður verðmæti íbúðabréfa við tryggingafræðilegt endurmat á eignum sínum vegna áforma fjármálaráðherra um að slíta ÍL-sjóði með sérstakri lagasetningu, náist ekki samkomulag við kröfuhafa um uppgreiðslu bréfanna.

Gildi færir niður íbúðabréfin um fimmtán milljarða

Gildi lífeyrissjóður hefur fært niður virði skuldabréfa, útgefnum af gamla Íbúðalánasjóðnum, um samtals 14,7 milljarða króna vegna áforma fjármálaráðherra um að slíta ÍL-sjóði með sérstakri lagasetningu, náist ekki samkomulagi við kröfuhafa. Niðurfærslan hefur þegar haft áhrif á greiðslur úr séreignardeild Gildis.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×