Samstarf

Heilbrigðisþing 2022 - bein útsending

Heilbrigðisráðuneytið

Bein útsending er hér í spilaranum fyrir neðan frá Heilbrigðisþingi sem fram fer í dag. Þingið hefst klukkan 9 og stendur til klukkan 16.

Á þinginu verður einstaklingurinn í forgrunni með áherslu á allt það sem við getum sjálf gert til að efla, vernda og viðhalda góðri heilsu. Jafnframt verður fjallað um hvernig stjórnvöld og stofnanir samfélagsins geta með ákvörðunum sínum og aðgerðum skapað almenningi sem bestar aðstæður til heilsueflingar á öllum æviskeiðum.

Dagskrá þingsins er sem hér segir:

9.00: Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra flytur opnunarávarp.

I Heilsulæsi í víðu samhengi og alþjóðlegu ljósi

9.20 Hans Kluge, framkvæmdastjóri Evrópudeildar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.

9.27 Chris Brown, yfirmaður á skrifstofu Evrópudeildar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar í Feneyjum (Office for Investment for Health and Development): The wellbeing economy - shaping the investment spending and policy to deliver wellbeing for all and how health is delivering and benefiting from the WBE.

10.10 Marion Devaux sérfræðingur OECD á sviði lýðheilsumála: Evaluation of the Multimodal Training Intervention (MTI) in Iceland and assessment of its transferability to other OECD and EU27 countries.

10.30: Heilsuhlé.

II Heilsulæsi í víðu samhengi - innleiðing lýðheilsustefnu

10.46 Alma D. Möller landlæknir: Betra er heilt en vel gróið - um mikilvægi lýðheilsu í víðu samhengi, sýn landlæknis á lýðheilsu í nútíð og framtíð og forystuhlutverk embættisins við innleiðingu lýðheilsustefnu stjórnvalda.

11.12 Dóra Guðrún Guðmundsdóttir kynnir drög að aðgerðaáætlun lýðheilsustefnu.

11.33 Þátttaka gesta: Leitað til þátttakenda um svör við ýmsum brennandi spurningum sem varða innleiðingu lýðheilsustefnu og það sem þeir telja mikilvægast að komi fram í aðgerðaáætlun stefnunnar.

11:50: Hádegisverður.

12.30 Kynntar niðurstöður síðasta dagskrárliðar fyrir hádegishlé.

III Að auka vitund almennings um heilsulæsi

12.45 Guðmundur Arnar Guðmundsson, hagfræðingur og framkvæmdastjóri Akademias; Hvernig fáum við fólk með eðluheila til að lifa heilbrigðara lífi? Um leiðir til að hafa áhrif á hegðun og efla lýðheilsu.

13.00 Janus Guðlaugsson; Öldrunarsamfélagið Ísland. Aldurssamsetning þjóðarinnar - þróun, áskoranir og tækifæri.

13.12 Margrét Lilja Guðmundsdóttir, þekkingarstjóri hjá Planet Youth og sérfræðingur hjá Rannsóknum & greiningu: Engar skyndilausnir takk – nýting gagna í nærumhverfi barna og ungmenna.

13.28 Jórlaug Heimisdóttir sérfræðingur hjá Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu: Heilsuefling í heilsugæslu - Heilsuvera.

13.44 Ásgerður Guðmundsdóttir, sjúkraþjálfari, íþróttakennari og verkefnastjóri heilsueflingar eldra fólks hjá Landssambandi eldri borgara og Margrét Regína Grétarsdóttir, íþróttafræðingur og verkefnastjóri heilsueflingar eldra fólks hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands: Bjartur lífsstíll.

14.00 Sveinn Waage: Húmor virkar.

14:10: Heilsuhlé með léttum veitingum.

IV Betri heilsuvitund og hagræn áhrif heilsulæsis

14.25 Gylfi Ólafsson forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða: Heilsulæsi, forvarnir og hagræn áhrif.

14.41 Erla Björnsdóttir sálfræðingur: Svefn ungmenna - leiðir til úrbóta. Erindi um heilsulæsi og svefn.

14.57 Sigrún Daníelsdóttir, verkefnastjóri geðræktar í skólum: Að verða læs á tilfinningar og samskipti - Geðræktarkennsla í skólum.

15.13 Halla Karen Kristjánsdóttir, formaður bæjarráðs Mosfellsbæjar; Af hverju skiptir heilsa og vellíðan sveitarfélög máli? Um heilsueflandi samfélagið Mosfellsbæ, þróun þess og framtíðarsýn.

V Samantekt lýðheilsuþings

15.30 Pallborðsumræður: Stjórnandi Dóra Guðrún Guðmundsdóttir. Þátttakendur eru Erna Sif Arnardóttir, Guðmundur Arnar Guðmundsson, Erla Gerður Sveinsdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir

16.00 Þingi slitið: Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×