Innlent

Mikið eftirlit í miðbænum vegna Airwaves

Kjartan Kjartansson skrifar
Airwaves er nú haldið í fyrsta skipti eftir kórónuveirufaraldurinn. Myndin er úr safni.
Airwaves er nú haldið í fyrsta skipti eftir kórónuveirufaraldurinn. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var með mikið eftirlit í miðborg Reykjavíkur vegna Airwaves-tónlistarhátíðarinnar í nótt. Flest mál sem komu upp voru þó minniháttar og tengdust ölvun.

Airwaves er nú haldin í fyrsta skipti eftir kórónuveirufaraldurinn. Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að sérstakur viðbúnaður hafi verið vegna þess en einnig hafi lögregla haft almennt eftirlit með skemmtistöðum, hávaða og réttindum dyravarða.

Mikið er sagt hafa verið um ölvunartengd minniháttar mál, ölvuðum hafi verið ekið heim og þeir aðstoðaðir með öðrum hætti. Í einu tilfelli var lögregluskýrsla skrifuð vegna réttindaleysis dyravarða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×