Porto hirti toppsætið og Leverkusen rændi Evrópudeildarsætinu Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 1. nóvember 2022 19:45 Atlético Madrid er úr leik. Diogo Cardoso/DeFodi Images via Getty Images Porto vann sterkan 2-1 sigur er liðið tók á móti Atlético Madrid í lokaumferð B-riðils Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Á sama tíma gerðu Bayer Leverkusen og Club Brugge markalaust jafntefli, en þau úrslit þýða að Porto endar í efsta sæti riðilsins og Atlético Madrid í því neðsta.
Porto og Club Brugge höfðu þegar tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum keppninnar fyrir leiki kvöldsins, en þrátt fyrir það var nóg undir þegar flautað var til leiks í leikjunum tveim. Enn var óvíst hvort Porto eða Club Brugge myndi tryggja sér efsta sæti riðilsins og þá var einnig enn óráðið hvort Bayer Leverkusen eða Atlético Madrid myndi vinna sér inn sæti í útsláttakeppni Evrópudeildarinnar. Fór það svo að lokum að Porto vann öruggan 2-1 sigur gegn Atlético Madrid þar sem Mehdi Taremi og Stephen Eustaquio sáu um markaskorun heimamanna í fyrri hálfleik áður en gestirnir frá Madrid minnkuðu muninn í uppbótartíma venjulegs leiktíma þegar Ivan Marcano varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net. Í hinum leik riðilsins gerðu Club Brugge og Bayer Leverkusen markalaust jafntefli, sem þýðir að Porto endar sem sigurvegari riðilsins með 12 stig og Club Brugge fer með portúgalska liðinu í 16-liða úrslit með 11 stig. Bayer Leverkusen lyfti sér upp í þriðja sæti riðilsins með jafnteflinu og er því á leið í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar, en Atlético Madrid situr eftir með sárt ennið.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira