Atvinnulíf

Útivistarkonan sem byrjar daginn á hugleiðslu í rúminu eða í baðinu

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Bára Mjöll Þórðardóttir, meðeigandi hjá Langbrók, elskar útivist og er meðal annars leiðsögumaður fyrir FÍ í útivistarverkefni sem heitir Kvennakraftur sem er fyrir konur sem eru byrjendur í fjallgöngum eða lengra komnar og vilja stunda útvist í félagsskap annarra kvenna. 
Bára Mjöll Þórðardóttir, meðeigandi hjá Langbrók, elskar útivist og er meðal annars leiðsögumaður fyrir FÍ í útivistarverkefni sem heitir Kvennakraftur sem er fyrir konur sem eru byrjendur í fjallgöngum eða lengra komnar og vilja stunda útvist í félagsskap annarra kvenna.  Aðsend

Bára Mjöll Þórðardóttir, meðeigandi hjá Langbrók, byrjaði fyrir stuttu í jákvæðri sálfræði í EHÍ og segir það bestu ákvörðun sem hún hefur tekið um ævina. Bára er nátthrafn í svefnátaki sem finnst gott að hefja daginn með hugleiðslu.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Ég vakna yfirleitt i kringum sjö en leyfi mér einstaka sinnum að sofa aðeins lengur ef ég hef farið seint að sofa.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

Þegar ég vakna finnst mér frábært að ná smá tíma í núvitund og stuttri hugleiðslu hvort sem það er í rúminu eða í baði. Það er svo gott að byrja daginn þakklát fyrir fólkið mitt, heilsuna og alla litlu hlutina sem gefa lífinu gildi. 

Ég er mikil baðmanneskja og er nokkuð ánægð með að hafa komið þeirri rútínu inn á morgnana, það er alveg magnað hvað það er gott að byrja daginn á góðri slökun.

Þar sem ég er frekar léleg vatnsdrykkjumanneskja reyni ég að hafa það fyrir venju að drekka alltaf vatnsglas þegar ég vakna, áður en ég fæ mér morgunbollann en fyrir mér byrjar dagurinn ekki fyrr en ég er búin að fá góðan kaffibolla.

Börnin mín eru orðin svo stór, en það er mismunandi hvenær þau eru að vakna eftir dögum og því eru morgnarnir mismunandi hjá okkur. Við sem erum vöknuð náum þó alltaf góðri stund saman í eldhúsinu áður en við höldum út í daginn.“

Á skalanum 1-10 – þar sem einn er lægsta einkunn en tíu er sú hæsta – hversu góð ertu að muna brandara eða endursegja þá?

„Við skulum segja að ég búi yfir mörgum góðum kostum en að endursegja brandara er líklega ekki einn af þeim. Þannig segjum svona 5, eða hvorki/né.

Ég kann samt mjög vel að meta góða brandara og finnst fátt betra en að hlægja. Hlátur hefur jákvæð áhrif á líf okkar og eykur vellíðan svo ég vona að fólk verði duglegt að segja mér alls konar brandara. Hver veit nema ég fari að leggja mig fram við að læra alls konar brandara til að skemmta fólki í tíma og ótíma.“

Í vinnunni starfar Bára mikið með fyrirtækjum sem eru að vinna í sjálfbærnimálum. Bára reynir að skipuleggja dagana sína vel, mætir snemma og leggur áherslu á góða yfirsýn verkefna. Bára segist líka mikil fjölskyldukona og forfallin útivistarunnandi þannig að gott skipulag skiptir máli. Aðsend

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Það eru fjölmörg verkefni í gangi hjá mér þessa dagana. Ég gekk nýlega til liðs við ráðgjafafyrirtækið Langbrók þar sem við Soffía meðeigandi minn erum að vinna að spennandi ráðgjafaverkefnum.

Það er mikil vakning meðal stjórnenda í atvinnulífinu varðandi samfélagsábyrgð og sjálfbærnimál. Við vinnum með stjórnendum í að kortleggja tækifæri á þessu sviði og innleiða breytingar sem hafa jákvæð áhrif á samfélagið og innan fyrirtækjanna sjálfra sem og að greina hvaða þættir í starfseminni hafa neikvæð áhrif á umhverfið. Þessi vinna er hugsuð til lengri tíma enda er alltaf pláss til að bæta sig í þessum efnum, stefnumörkunin skiptir því gríðarlega miklu máli. Við fylgjum eftir alþjóðastöðlum í innleiðingu skýrslugerðar sem byggir á skotheldri aðferðafræði.

Það skemmtilega er síðan að aðstoða stjórnendur við að koma þessu á framfæri til hagaðila með almannatengslum og markaðsráðgjöf þannig að dagarnir eru ansi fjölbreyttir. Mér finnst ég einstaklega heppin að fá að vinna með flottum fyrirtækjum að málefnum sem skipta mig máli og fá að byggja upp fjölbreytt og ábyrg vörumerki.

Ég var líka að hefja diplómanám á meistarastigi í jákvæðri sálfræði hjá Endurmenntun Háskóla Íslands og finn strax að það er ein allra besta ákvörðun sem ég hef tekið í lífinu. 

Þessi hugmyndafræði er svo áhugaverð og ég er viss um að hún mun hafa mikil áhrif á það hvernig við munum nálgast ákveðna þætti varðandi heilsufar, áföll, breytingastjórnun, fyrirtækjamenningu og ýmislegt fleira í framtíðinni.

Ég fæ mikla orku úr útivist og hreyfingu og elska að vera uppi á fjöllum og úti í náttúrunni. Ég á mikið af góðum vinkonum sem stunda útivist og hreyfingu og við erum alltaf að takast á við einhver skemmtileg verkefni þar sem mottóið er fyrst og fremst gaman saman. 

Ég er líka að gæda fyrir FÍ í frábæru útivistarverkefni sem heitir Kvennakraftur en verkefnið er bæði hugsað fyrir konur sem eru að stíga sín fyrstu skref í fjallgöngum og þær sem eru komnar lengra, og vilja stunda útivist og hreyfingu í skemmtilegum félagsskap annarra kvenna.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Ég er yfirleitt komin á skrifstofuna snemma á morgnana. Við leggjum mikið upp úr því að vera með góða yfirsýn yfir skipulag vikunnar og þau verkefni sem liggja fyrir þannig það er alltaf skýrt hvað liggur fyrir hverju sinni og því auðveldara að bregðast við verkefnum sem koma inn á borð og þarf að leysa með hraði.

Ég er mikil fjölskyldukona og forfallin útivistarunnandi svo yfirleitt reyni ég að skipuleggja dagana mína þannig að ég nái að sinna vinnunni vel en einnig rækta sjálfa mig, heilsuna og þann tíma sem ég fæ með börnunum mínum og öllu góða fólkinu í kringum mig.

Það er líka frábært að hafa þann sveigjanleika að geta sniðið sig í kringum verkefnin sín og það sem er í gangi hverju sinni en sum verkefni er hægt að vinna eftir hefðbundinn vinnutíma meðan önnur krefjast þess að þau séu kláruð áður en haldið er heim þann daginn.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

Ég hef markvisst verið að vinna í því að fara fyrr að sofa en ég er algjör nátthrafn og á mjög auðvelt með að vaka frameftir öllu. Þessa dagana er ég yfirleitt komin upp í rúm fyrir miðnætti en markmiðið er að ná átta tíma hvíld yfir nóttina, þó svo að það takist ekki alltaf.

Ég finn mjög vel hvað góður nætursvefn gerir fyrir mig og gef minni afslátt af svefni en ég gerði áður. Ég fer mikið út að ganga og í sund eða bað á kvöldin sem skilar sér yfirleitt í betri svefni en mér finnst líka frábært að grípa í góða bók fyrir svefninn. Untamed eftir Glennon Doyle er á náttborðinu núna og lofar góðu.“


Tengdar fréttir





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×