Samstarf

iPad 10 í lit, iPad Pro með M2 og nýtt Apple TV

Epli
Fjórir hressandi litir eru í boði á iPad 10
Fjórir hressandi litir eru í boði á iPad 10

Tíunda kynslóð iPad fær litríka og stóra uppfærslu. iPad 10 spjaldtölvan fær stærri 10,9” skjá með rúnuð horn án þess að stækka, hraðvirkan fingrafaralesa á hliðinni sem fer minna fyrir, vel staðsetta 12 megadíla fremri myndavél sem hentar betur fyrir myndsamtöl og A14 Bionic örgjörva sem eykur afköst án þess að draga úr rafhlöðuendingu. iPad 10 fær öflugra þráðlaust samband og styður nú bæði 5G og WiFi 6.

Fjórir litir og nýtt lyklaborð

iPad 10 kemur í fjórum hressandi litum: klassískum silfur, gulum, bleikum og bláum. Skelin er alveg endurhönnuð og er loksins kominn í mjúku hornin sem ríkja í hönnum Apple núna. iPad 10 fær nýtt lyklaborð smellist á með seglum sem kemur með snertimús og aðgerðartökkum efst. Magic Keyboard Folio lyklaborðið kemur einnig með baki með stillanlegum halla. iPad 10 styður fyrstu kynslóð af Apple Pencil.

Magic Keyboard Folio lyklaborð fyrir iPad með snertimús og vel staðsetta myndavélin sem er efst fyrir miðju

iPad Pro með M2 örgjörva

iPad Pro 11” og 12,9” spjaldtölvurnar fá líka ást og athygli: öflugri Apple M2 örgjörva, nýja svif-virkni fyrir Apple penna, ProRes hröðunarkjarna fyrir myndvinnslu, 5G farnet og stuðning við WiFi 6 þráðlaus net. iPad Pro eru nú sjálfbærari og nota endurnýtt gull að öllu leyti, ásamt því að nota endurnýtt ál, tin og önnur sjaldgæf jarðefni.

iPad Pro 11 og 12,9 fá uppfærslu í M2 örgjörva Apple

Apple penninn getur nú svifið yfir skjáinn og er numinn í allt að 12 mm fjarlægð. Öpp geta nýtt sér þann eiginleika á ýmsa máta: teikniforrit eins og ProCreate getur forsýnt þér það á að teikna eða sýnt þér stærð bursta áður hann er notaður.

iPad Pro 2022 geta numið Apple penna í allt að 12 mm fjarlægð

Miklu betri stuðningur við skjái og hraðari fjölverkun

iPadOS er að fá stóra uppfærslu í haust sem iPad Pro ná að nýta sér vel. Þá verður miklu þægilegra að tengjast skjám með Thunderbolt4 tenginu og nota utanáliggjandi skjá eins og fólk þekkir af MacOS. Stage Manager eykur hraða fjölverkunar með svokölluðum sviðum, sem eru safn af allt að fjórum öppum sem þú getur raðað upp að þínum hætti á iPad skjánum eða safn af allt að átta öppum á utanáliggjandi skjá. Sviðin geta verið allt að fjögur og eru staðsett vinstra megin á skjánum.

Taktu iPad fjölverkun á næsta stig með Stage Manager

Nýtt Apple TV með HDR10+ stuðning

Apple TV, sem er einn einn vinsælasti myndlykill Íslands, fær nýjan A15 Bionic örgjörva og HDR10+ stuðning sem gerir myndefni bjartara og meira lifandi. Siri fjarstýringin fær USB-C hleðslutengi í stað Lightning. Tvær útgáfur eru í boði: 64GB án nettengis og 128GB með nettengi og Thread stuðningi fyrir snjallheimilið.

​​

Siri fjarstýringin er nú með USB-C tengi




Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×