Fótbolti

Stuðningsmenn bauluðu á Schmeichel

Sindri Sverrisson skrifar
Kasper Schmeichel hefur leikið tíu deildarleiki fyrir Nice en gæti verið á förum strax í janúar.
Kasper Schmeichel hefur leikið tíu deildarleiki fyrir Nice en gæti verið á förum strax í janúar. Getty

Danski landsliðsmarkvörðurinn Kasper Schmeichel hefur ekki átt sjö dagana sæla hjá franska félaginu Nice og gæti verið á förum frá félaginu í janúar eftir að hafa komið í sumar.

Schmeichel varði mark Leicester um árabil með glæsibrag og er í miklum metum hjá stuðningsmönnum félagsins eftir að hafa verið einn af lykilmönnunum þegar liðið varð afar óvænt Englandsmeistari árið 2016.

Hjá Nice er Schmeichel ekki í sömu metum og um helgina bauluðu stuðningsmenn félagsins á Schmeichel þegar nafn hans var lesið upp í hátalarakerfinu, fyrir 1-1 jafnteflið við Nantes á heimavelli. Stuðningsmennirnir fögnuðu hins vegar þegar nafn varamarkvarðarins, Marcin Bulka, var lesið upp.

Nýverið bárust af því fregnir að Schmeichel vildi mögulega losna frá Nice í janúar og að ekki væri útilokað að hann myndi snúa aftur til Leicester, þar sem hann spilaði í rúman áratug.

Í síðasta mánuði sagði franski miðillinn RMC Sport að Schmeichel væri umdeildur hjá Nice vegna þess að hann vildi ekki fara eftir öllum reglum félagsins og að aðilar honum tengdir hefðu haft beint samband við eigandann Jim Ratcliffe til að ýta á eftir því að Schmeichel yrði í byrjunarliði í fyrsta leik. Á endanum var þó hinn pólski Bulka valinn í þann leik. Þá þótti Schmeichel hafa mætt með of háa fituprósentu úr sumarfríinu.

Schmeichel hefur nú varið mark Nice í tíu deildarleikjum en liðið er í 12. sæti af 20 liðum í frönsku 1. deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×