Viðskipti innlent

Berglind Rán frá Orku náttúrunnar til ORF Líftækni

Atli Ísleifsson skrifar
Berglind Rán Ólafsdóttir.
Berglind Rán Ólafsdóttir. Aðsend

Berglind Rán Ólafsdóttir hefur verið ráðin forstjóri ORF Líftækni. Hún hefur undanfarin ár starfað sem framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar.

Í tilkynningu segir að staða forstjóra ORF hafi verið auglýst í kjölfar uppskiptingar fyrirtækisins í ORF Líftækni annars vegar og BIOEFFECT hins vegar. 

Berglind hefur verið framkvæmdastýra Orku náttúrunnar í rúm fjögur ár auk þess sem hún er stjórnarformaður Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja á Íslandi.

„Berglind Rán er með M.Sc. gráðu í sameindalíffræði frá Háskóla Íslands og MBA frá IESE í Barcelona og býr bæði yfir haldgóðri reynslu af viðskiptaþróun, m.a. frá Medis – dótturfélagi Actavis og Landsvirkjun, og vísindarannsóknum frá Íslenskri erfðagreiningu þar sem hún vann við erfðafræðirannsóknir,“ segir í tilkynningunni.

Liv Bergþórsdóttir hefur sinnt forstjórastarfinu hjá ORF Líftækni samhliða forstjórastarfinu hjá BIOEFFECT en mun nú einbeita sér að rekstri og vexti BIOEFFECT.

Um ORF Líftækni segir að fyrirtækið sé leiðandi í plöntulíftækni og hafi framleitt vaxtarþætti í um fimmtán ár. „Nýsköpun og sérstaða ORF Líftækni byggir á framleiðslu vaxtarþátta í byggplöntum. ORF Líftækni starfar nú eftir skýrri framtíðarsýn um að vera virkur þátttakandi í nauðsynlegum breytingum í matvælaframleiðslu heimsins með ræktun og framleiðslu dýravaxtarþátta fyrir stofnfrumuræktað kjöt.“

Rétt í mótun

Haft er eftir Berglindi Rán að það gefist ekki oft tækifæri til að leiða fyrirtæki til vaxtar á markaði sem sé rétt í mótun. „Ég hlakka til að leiða ORF Líftækni og fá þannig tækifæri til nýta bæði líftæknimenntun mína og reynslu og þekkingu úr viðskiptalífinu. Dýravaxtarþættir ORF Líftækni hafa þegar sannað sig á þessum nýja markaði sem líklegast mun hafa meiri áhrif á neyslu okkar á dýraafurðum en nokkuð annað. Ég hlakka mikið til að leiða þá vinnu sem er framundan svo við getum lagt okkar af mörkum til þess að breyta heiminum til góðs,“ segir Berglind Rán.

Auglýst laus til umsóknar á næstu dögum

Berglind Rán hafði starfað hjá Orku náttúrunnar í fimm ár, fyrst sem forstöðumaður fyrirtækjamarkaða og síðar sem framkvæmdastýra frá árinu 2018.

„Starfið verður auglýst laust til umsóknar á næstu dögum en Berglind Rán mun sinna því þar til nýr leiðtogi hefur tekið við. Jafnframt verður hún nýjum stjórnanda innan handar til að byrja með,“ segir í tilkynningu frá Orku náttúrunnar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×