Innlent

618 árs­gömul börn á bið­lista eftir leik­skóla­plássi

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Reykjavíkurborg er langt frá því að geta boðið öllum ársgömlum börnum leikskólapláss.
Reykjavíkurborg er langt frá því að geta boðið öllum ársgömlum börnum leikskólapláss. Vísir/Vilhelm

Enn bíða 618 börn 12 mánaða og eldri eftir að fá leikskólapláss í Reykjavík. Nærri hundrað pláss eru ónýt vegna myglu og þá hefur ekki tekist að manna leikskólana til að geta boðið fleiri pláss.

Frá þessu greinir Fréttablaðið.

Þar segir að börnum á biðlista hafi fjölgað um 162 frá 1. september, þegar 456 börn 12 mánaða og eldri biðu eftir plássi.

Í svari skóla- og frístundasviðs við fyrirspurn Fréttablaðsins segir að lausum stöðugildum hjá leikskólum borgarinnar hafi fækkað aðeins en mönnunarvandinn sé viðvarandi. Þá séu 92 pláss ónýtt vegna myglu eða viðhalds, í leikskólunum Árborg, Kvistaborg, Laugasól, Sunnuási og Vesturborg.

Enn er unnið að mögulegum leikskóla við Korpuskóla og nýjum leikskóla í Fossvogi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×