Samstarf

Svört sem miðnætti og miklu hraðari

Epli
Nýtt útlit, stærri skjár, þynnri, hraðari og nú í dökkum lit.
Nýtt útlit, stærri skjár, þynnri, hraðari og nú í dökkum lit.

Alveg endurhönnuð MacBook Air.

MacBook Air er vinsælasta tölvan frá Apple, ef ekki í heiminum, og hefur Apple endurhannað hana frá grunni til að nýta sér aflið frá M2 örgjörvanum sem Apple sjálft framleiðir. Fartölvan kemur í nýrri skel sem er þynnri og mýkri með rúnuðum hornum í stíl við MacBook Pro. Segulmagnaða Magsafe-hleðslusnúran er líka loksins komin aftur, og nú er hægt að hlaða fartölvur í kringum börn, gæludýr og klunna. Apple M2 örgjörvinn gerir það að verkum að tölvan er öflug en á sama tíma endingagóð og endist rafhlaðan í allt að 18 klukkustundir.

Magsafe er komið aftur og kemur í veg fyrir að tölvan þín þjóti á gólfið þegar labbað er á snúruna.

Magsafe og tveggja raufa hleðsla

Magsafe er komið aftur, og nú með þynnri haus fyrir þynnri tölvu. Hleðslusnúran fær líka uppfærslu og er nú vafinn og samlita tölvunum. Það er líka hægt að fá 35W hleðslutæki með tveimur USB-C raufum svo hægt sé að hlaða tvö tæki á sama tíma. Einnig er hægt að uppfæra í 67W hleðslutæki til að fá hraðhleðslu sem gefur þér 50% á hálftíma.

Svört sem miðnætti

Nýja skelin gerir það að verkum að það fer miklu minna fyrir henni í töskunni og það er mun þægilegra að handleika hana. En það er ekki það eina sem er nýtt við útlitið: þetta er fyrsta fartölvan frá Apple í lengri tíma sem býður upp á dökkan lit sem kallast miðnæturblár (Midnight). Þrír aðrir litir eru í boði: klassíski silfur, geimgrár og létt-gylltur.

Miðnæturblár er djúpur svartur litur með dass af bláum

Apple M2 örgjörvinn kraftmikill en hljóðlaus

M2 er önnur kynslóð tölvuörgjörva Apple, en þau hafa framleitt örgjörva í snjallsíma um árabil fyrir iPhone. Á örgjörvanum eru margar einingar: fjórir kjarnar sem spara orku, fjórir kjarnar sem afkasta miklu, 16 gervigreindarkjarnar og margmiðlunarvél sem auðveldar myndvinnslu. M2 örgjörvinn styður einnig ProRes-hröðun með sérhæfðri einingu, þannig hún er fáranlega fljót að spýta út ProRes myndböndum og getur klippt myndbönd í 8K upplausn.

Allt frá léttri ritvinnslu og upp í margmiðlun

MacBook Air kemur vel útbúin í grunninn fyrir langflest en hægt er að sníða hana að þungri vinnslu. M2 örgjörvinn styður allt að 24GB samnýtanlegt vinnsluminni fyrir þau sem elska að opna flipa, semja tónlist, keyra sýndarkerfi eða reikna í stórum töflureikniskjölum. Einnig er hægt að fjölga skjákjörnum frá 8 í 10 til að fá meira afl fyrir myndvinnslu. Þau sem vilja fullt af geymsluplássi geta uppfært í 1 eða 2TB með sérpöntun hjá Epli. Allur þessi sveigjanleiki í 1,24 kg. pakka sem fer með þér hvert sem er





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×