Eftir öruggan sigur Tindastóls gegn Haukum á Sauðárkróki á mánudag kom í ljós að um miðjan þriðja leikhluta, þegar Haukar fengu tvö vítaskot, hefðu fjórir erlendir leikmenn Tindastóls verið inni á vellinum.
Það stangast á við nýjar reglur sem tóku gildi fyrir tímabilið, um þann hámarksfjölda erlendra leikmanna sem mega vera inni á vellinum í hvoru liði hverju sinni. Þeir mega í mesta lagi vera þrír.
Boltinn telst í leik þegar víti eru tekin en þar sem að Hilmar Smári Henningsson hitti úr seinna víti sínu, og Tindastóll tók leikhlé strax í kjölfarið, var boltanum ekki spilað á meðan að of margir erlendir leikmenn voru á gólfinu.
Í reglum KKÍ segir að hafi lið teflt fram ólöglegum leikmanni sé því dæmt 20-0 tap í viðkomandi leik, nema að liðið hafi unnið sigur með stærri mun.
Haukar íhuguðu að kæra málið en stjórn KKÍ tók af þeim ómakið eftir fund í dag, og ákvað að vísa málinu til aga- og úrskurðarnefndar. Þetta staðfesti Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, í samtali við Vísi.
Leik Njarðvíkur frestað þar til vitað er hver mótherjinn verður
„Við fengum fréttir af þessu máli seinni partinn í gær. Formlega ábendingu í kjölfarið. Þá ber okkur að skoða málið samkvæmt lögum og reglum sambandsins. Við komum saman á stuttum stjórnarfundi í hádeginu og stjórnin ákvað að fara með málið fyrir aga- og úrskurðarnefnd, til að hún taki málið fyrir og þar til bærir aðilar taki á málinu,“ sagði Hannes.
Stjórn KKÍ tók því ekki afstöðu til málsins og nú tekur við bið eftir gagnaöflun og niðurstöðu aga- og úrskurðarnefndarinnar.
Búast má við að sú bið verði lengri en til mánaðamóta, en næsta umferð í bikarnum á að vera spiluð 30. og 31. október. Hannes segir að leik Njarðvíkur og Tindastóls verði sennilega frestað þar til að niðurstaða fæst í það hvort að andstæðingur Njarðvíkur verður Tindastóll eða Haukar.
„Við þurfum að skrifa upp okkar greinargerð og annað til nefndarinnar, og getum vonandi skilað því af okkur í fyrramálið. Þá mun Tindastóll fá sinn tíma til að skila sinni vörn og sínum skoðunum, og mun væntanlega fá sjö daga í það. Nefndin muni svo eflaust taka sinn tíma og því er ekki von á niðurstöðu fyrr en eftir 2-3 vikur myndi ég halda,“ segir Hannes.