Fótbolti

Glódís hafði betur gegn Guðrúnu

Atli Arason skrifar
Glódís Perla Viggósdóttir, leikmaður Bayern München og íslenska landsliðsins.
Glódís Perla Viggósdóttir, leikmaður Bayern München og íslenska landsliðsins. Vísir/J

Landsliðskonurnar Glódís Perla Viggósdóttir, leikmaður Bayern München og Guðrún Arnardóttir, leikmaður Rosengård, mættust í Meistaradeild Evrópu í kvöld þar sem Glódís og stöllur hennar í Bayern unnu 2-1 sigur. Sara Björk Gunnarsdóttir, leikmaður Juventus, lék á sama tíma í 0-2 útisigri liðsins á Zürich.

Loreta Kullashi, leikmaður Rosengård, kom gestunum yfir gegn Bayern á 25. mínútu áður en Carolin Simon jafnaði fyrir Bayern tíu mínútum síðar. Það var svo Linda Dallmann sem tryggði heimakonum stigin þrjú á 57. mínútu þegar hún var fyrst á frákastið eftir markvörslu Teagan Micah, markvörð Rosengård.

Bæði Glódís og Guðrún léku allan leikinn fyrir sín lið í viðureigninni.

Leikur liðanna var sá fyrsti í D-riðli Meistaradeildar Evrópu og Bayern fer því á topp riðilsins með sigrinum. Barcelona og Benfica mætast svo við í hinum leik riðilsins.

Sara Björk Gunnarsdóttir, leikmaður Juventus, lék einnig allan leikinn í 0-2 sigri Juventus á Zürich í C-riðli. Valentina Cernoia og Barbara Bonansea skoruðu mörk Juventus á 15 mínútna kafla undir lok leiks.

Sigurinn lyftir Juventus á topp C-riðils eftir fyrstu umferð en stórliðin Arsenal og Lyon eigast við í síðari leik riðilsins í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×